Láku upplýsingum um ferðahagi danska kóngafólksins á Íslandi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. maí 2014 11:28 „
Stórir hlutir eru að gerast í Danmörku.“ Þetta segir uppljóstrarinn Edward Snowden í opnu bréfi í danska dagblaðinu Berlinske.Fyrrum blaðamaður hjá slúðurtímaritinu Se og Hør gaf út bók á dögunum þar sem hann segir frá persónunjósnum tímaritsins síðastliðin fjögur ár. Um er að ræða starfsmann, hugbúnaðarsérfræðing, hjá danska kortafyrirtækinu Nets sem tímaritið réði til þess að fylgjast með kortanotkun fólks.Alltaf hætta á njósnum - hvar sem er í heiminum Í grein Snowdens segir hann það ekki skipta máli hvort tölvupóstur sé skrifaður í Árósum, kreditkortið sé notað í Óðinsvéum eða hringt sé í móður sína í Kaupmannahöfn, miklar líkur séu á að símtalið verði tekið upp og hlerað, rannsakað og síðan geymt af ríkinu og jafnvel einkafyrirtækjum og dagblöðum. Hann segir þetta mál varpa ljósi á alþjóðlegt vandamál sem sé að gerast hvaðanæva í heiminum og því sé nauðsynlegt að gripið verði til aðgerða.Danaprinsessa og danaprins eru meðal þeirra sem urðu fyrir barðinu á persónunjósnunum.Njósnunum var einna helst beint til þjóðþekktra einstaklinga, og var konungsfjölskyldan og forsætisráðherra landsins á meðal þeirra.Upplýsingar sendar til blaðamanna í sms skilaboðum Samkvæmt smáskilaboðum sem birt eru á vefsíðu BT má sjá hversu miklum pening María prinsessa eyddi í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Prinsessan notaði kort sitt í tvígang, í annað skiptið eyddi hún rúmum 102 þúsund krónum og í hitt skiptið rúmum tólf þúsund krónum. Þá eru einnig upplýsingar um ferð Jóakims prins í Bláa lónið. Leikararnir gamalkunnu, Casper Christensen, sem er hvað helstur fyrir þættina Klovn, og Mads Mikkelsen eru meðal þeirra sem urðu fyrir barðinu á persónunjósnum tímaritsins. Þeir ætla að höfða mál gegn Aller Media, útgáfufélagi Se og Hør.Fengu farþegalista SAS Þá greiddi tímaritið einnig fyrir upplýsingar um farþega frá flugfélaginu SAS. Samkvæmt dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 hefur starfsmaður SAS veitt tímaritinu farþegaupplýsingar til fjölda ára. Í nýlegri könnun danska blaðsins Politiken eru níu af hverjum tíu sammála því að réttur manna til friðhelgi einkalífsins sé mikilvægari en njósnir. Allt að sjötíu prósent Bandaríkjamanna eru sammála því.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Sjá meira