Innlent

Verkfall flugmanna Icelandair yfirvofandi: "Gífurlega mikið ber á milli aðila“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
„Gífurlega mikið ber á milli aðila,“ segir formaður FÍA og bendir því allt til þess að flugmenn Icelandair fari í verkfall á morgun. Deilendur settust við samningaborðið klukkan 13 í dag í húsi Ríkissáttasemjara og stendur fundur enn yfir.

Icelandair hefur þegar aflýst tuttugu og sex flugferðum á morgun og mun flug til og frá landinu raskast töluvert.  Þá gæti verkfallið sett ferðaáætlanir tæplega sjö þúsund ferðalanga í uppnám.

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands telur að lög verði sett á verkfallið komi til allsherjarverkfalls.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands, telur að allt bendi til þess að lög verði sett á verkfallið náist samningar ekki fyrir boðað allsherjarverkfall.

„Ef fortíðin hefur gott forspárgildi fyrir framtíðina, þá yrðu líklega sett lög á verkfallsaðgerðir flugmanna ef til allsherjarverkfalls kæmi.“Hann bendir þó á aðrar lausnir, svo sem gerðardóm, sem hægt væri að grípa til náist ekki sátt.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir verkfallsréttinn sterkasta vopn allra launþega.
Réttur launþega hrifsaður burt

Gylfi Arnbjörnsson
, forseti ASÍ, segir verkfallsréttinn sterkasta vopn allra launamanna og því sé ekki rétt að hrifsa það burt.

„Þetta er samningsréttur okkar sem Alþingi á ekki að hafa afskipti af. Það á ekki að setja lög á þessa hópa frekar en aðra. Það á ekki að beita ríkisvaldinu gegn þjóðinni og það stóð aldrei til að Alþingi fengi umboð til að beita sér gegn launamönnum. Það er brot á Alþýðusambandslögum og stjórnarskrá. Slík valdbeiting er óafsakanleg“ segir Gylfi.

„Ég vona að flugmenn sýni samstöðu með öðrum starfsstéttum og deili kjörum með þeim.“

Hafsteinn Pálsson, formaður FÍA, segir ansi langt í land í kjaradeilu flugmanna. Því séu miklar líkur á verkfalli.
Um 300 flugmenn starfa hjá Icelandair og hafa þeir boðað til sex tímabundinna verkfalla takist samningar ekki. Verkföll eru boðuð 9., 16., og 20. maí frá klukkan sex að morgni til klukkan sex síðdegis. Þá ætla flugmenn að leggja niður vinnu frá klukkan sex að morgni 23. maí til sex að morgni 25. maí hafi samningar við Icelandair ekki tekist.

Einnig er boðað til verkfalls frá klukkan sex að morgni 30. maí til klukkan sex að morgni þann 3. júní.  Fyrirhuguð verkföll flugmanna setja því ferðaáætlanir þúsunda manna í uppnám á næstunni.

Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), segist ekki vilja ræða kröfugerð flugmanna opinberlega en samkvæmt heimildum fréttastofu eru meðallaun flugmanna og flugstjóra á bilinu 1,5 til 2 milljónir á mánuði. Samtök atvinnulífsins segja að flugmenn krefjist þrjátíu prósenta hækkunar launa á samningstímanum.

Umræður um lög á verkfall einkennilegar

Samkvæmt kjarasamningum Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) við Icelandair hefur flugstjóri með fimmtán ára starfsreynslu ríflega milljón krónur í föst laun á mánuði. Byrjunarlaun nýs flugmanns hjá fyrirtækinu eru um hálf milljón króna á mánuði. Flugmenn höfnuðu samningi með almennri launahækkun upp á 2,8 prósent sem gildir til eins árs. 

Hafsteinn segir umræður um að setja lög sem banna verkfall flugmanna einkennilegar. Landið lokist ekki þó flugmenn Icelandair fari í verkfall.  Hann bendir á að sjö til átta flugfélög fljúgi til og frá landinu í byrjun maí en þau verði átján í sumar.

Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði, telur að kjaradeilan muni leystast von bráðar.
Töluvert inngrip á samningsréttinn

Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði, segir að í gegnum tíðina hafi frekar verið sett lög á verkföll á gjaldeyrisskapandi starfsstéttir. Hún segir það þó ekki algengt því þetta sé töluvert inngrip á samningsrétt launþega.

„Ef til þessara aðgerða kemur þá yrði þetta gert á þeim tíma sem þing er ekki starfandi. Þá þyrfti að setja bráðabirgðalög sem eru mjög sjaldgæf. En það þyrfti að vera kominn ægilega stór hnútur til að svo fari, “ segir Stefanía og bætir við að hún telji miklar líkur á að hnúturinn leysist í bráð. Mikið sé í húfi fyrir Icelandair, mikil samkeppni sé á markaðnum og ímynd þeirra í húfi. „Ég held líka að stjórnmálamenn séu ekki mikið að fara að blanda sér í þetta. Inngrip sem þetta yrði ekki vinsælt, svona rétt fyrir kosningar. En mögulega, kannski.“

Beint fjárhagstap Icelandair Group mun nema á bilinu 1,5 til 1,7 milljörðum króna ef verkfallið varir allan þann tíma sem boðað hefur verið.


Tengdar fréttir

„Allir vita að flugmenn eru vel launaðir“

Upplýsingafulltrúi Icelandair er hóflega bjartsýnn á að samningar takist áður en verkfallsaðgerðir flugmanna skella á eftir viku. Hann segir kröfur flugmanna umtalsverðar.

Verkfall hefur áhrif á 7.000 ferðalanga

Samtök atvinnulífsins segja að flugmenn Icelandair fari fram á 30 prósenta launahækkun. Fyrsta boðaða verkfall flugmanna er 9. maí og setur ferðaplön 7.000 manns, sem ýmist eru að koma eða fara frá landinu, í uppnám þennan eina dag.

Allar líkur á verkfalli á föstudag

Fundi lauk í kjaradeilu flugmanna Icelandair laust fyrir klukkan 17 í dag, án árangurs. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir enga lausn í sjónmáli.

Flugmenn í verkfall

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur boðað ótímabundið yfirvinnubann flugmanna Icelandair ehf. sem mun hefjast hinn 9. maí klukkan sex að morgni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×