Innlent

„Menn fara ekki út í þær aðgerðir að boða verkfall af gamni sínu“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir/Daníel
„Það er búið að slíta viðræðunum í bili,“ segir Kristján Jóhannsson, formaður félags flugmálastarfsmanna, í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun.

Samninganefndir flugmálastarfsmanna og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Isavia hafa setið á samningafundi frá því í gær og lauk fundi ekki fyrr en á sjöunda tímanum í morgun. Ekki náðist neinn árangur á fundinum og hafa viðræðurnar því siglt í strand.

„Við munum sennilega hittast aftur í dag og því tel ég að það sé best að ræða sem minnst um ákveðin deilumál.“

Kristján segir að samninganefndirnar nálgist hægt og rólega að settu markmiði.

„Það var samt sem áður mat manna að þetta væri kannski aðeins of mikið til þess að halda áfram.“

Boðað hefur verið til allsherjarverkfalls á öllum flugvöllum landsins aðfararnótt miðvikudags, náist ekki samningar í tíma.

„Fólk er að koma til landsins og fara allan ársins hring og við vitum það vel. Enda höfum við áður sagt að menn fara ekki út í þær aðgerðir að boða verkfall af gamni sínu, heldur er þetta gert til þess að þrýsta á um kröfur.“

Kristján segir að flugmálastarfsmenn hafi gefið út aðgerðaráætlun fyrir nokkrum vikum og síðan þá farið í þrjú skammtímaverkföll, nú sé komið að þessu boðaða allsherjarverkfalli.

„Við höfum ekki séð ástæðu til þess að afboða það eða fresta því.“

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Allar líkur á töfum á millilandaflugi á morgun

Samninganefnd þriggja stéttarfélaga hefur skoðað tilboð Ísavia um helgina og gerðu samninganefnd Samtaka atvinnulífsins gagntilboð í dag. Skæruverkfall hefst að öllum líkindum kl 4 í fyrramálið.

Icelandair breytir áætlun sinni á Bandaríkjaflugi

Flugfélagið Icelandair hefur breytt áætlun allra flugvéla sem fara frá Bandaríkjunum í kvöld og allra flugvéla sem eru í áætlun 23.apríl vegna verkfalls starfsmanna Isavia á Keflavíkurflugvelli.

Flugvallarstarfsmenn með hálfa milljón á mánuði

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að flugvallarstarfsmenn séu með um hálfa milljón í mánaðarlaun. Hann segir þá krefjast 26 prósenta hækkunar á launum sem komi ekki til greina að semja um.

Allt flug stöðvast í fyrramálið

Allt flug mun liggja niðri á milli klukkan fjögur og níu í fyrramálið og kemur það til með að snerta um fjögur þúsund farþega.

Vonast eftir niðurstöðu í dag

Samninganefndir Isavia og Félags flugmálastarfsmanna ríkisins sitja sáttafund og freista þess að afstýra vinnustöðvun í nótt.

Önnur vinnustöðvun flugvallastarfsmanna hófst í nótt

Boðuð fimm klukkustunda vinnnustöðvun flugvallastarfsmanna hófst klukkan fjögur í nótt og er búist við mikilli örtröð í Leifsstöð um og upp úr klukkan níu, þegar innritun farþega getur loks hafist, ásamt innvigtun farangurs og vopnaleit.

Viðræðum frestað um óákveðin tíma

Samkomulag náðist ekki í kjaraviðræðum flugvallastarfsmanna hjá sáttasemjara í dag. Mikið ber á milli samningsaðila og hefur Ríkissáttasemjari frestað viðræðum um óákveðin tíma.

Verkfall flugvallarstarfsmanna skellur á í nótt

Fimm tíma skæruverkfall flugvallarstarfsmanna skellur á snemma í fyrramálið með tilheyrandi töfum á millilandaflugi en þetta staðfesti Kristján Jóhannsson formaður Félags flugmálastarfsmanna í samtali við fréttastofu í kvöld.

Reynt til þrautar í deilu flugmálastarfsmanna

Rúmur sólarhringur er þar til að allsherjarverkfall flugmálastarfsmanna hefst á öllum flugvöllum landsins. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar hefur miklar áhyggjur af stöðu mála og óttast að orðspor Íslands bíði hnekki.

Lög líklega sett á verkfall

Dósent við HÍ segir líkur benda til að lög verði sett á verkfall flugvallarstarfsmanna. Lögmaður segir ýmis rök lúta að því að flugsamgöngur til og frá landinu varði almannaheill. Því sé heimilt að banna verkfall með lögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×