Innlent

Íslendingur vann milljónir í Austurríki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bjarni Þór Valdimarsson í heita sætinu í gær.
Bjarni Þór Valdimarsson í heita sætinu í gær.
Bjarni Þór Valdimarsson, 36 ára gamall Íslendingur sem búsettur hefur verið í Austurríki undanfarin 15 ár, vann 75 þúsund evrur í jólaþætti Viltu vinna milljón í austurríska ríkissjónvarpinu í gær. Er það jafnvirði um 11,5 milljón íslenskra króna.

Bæjarins besta greindu fyrst frá íslenskra miðla enda kannast Vestfirðingar við kappann sem bjó um árabil á Ísafirði og Suðureyri. Hann er sonur Sr. Valdimars Hreiðarssonar, fyrrverandi sóknarprests á Suðureyri.

Hér má sjá þáttinn frá því í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×