Innlent

Dæmdur fyrir vörslu barnakláms

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla lagði hald á tölvu mannsins í febrúar síðastliðinn.
Lögregla lagði hald á tölvu mannsins í febrúar síðastliðinn. Vísir/Getty
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 28 ára karlmann fyrir vörslu barnakláms.

Maðurinn skal sæta fangelsi í tvo mánuði, en skal fullnustu refsingarinnar falla niður að tveimur árum liðnum, haldi maðurinn almennt skilorð.

Lögregla lagði hald á tölvu mannsins í febrúar síðastliðinn en í tölvunni var 21 myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.

Maðurinn játaði skýlaust brot sín en hann hefur ekki sætt refsingu áður svo kunnugt sé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×