Vafasöm viðskipti Vegagerðarinnar Bjarki Ármannsson skrifar 16. desember 2014 20:00 Vegagerðin er sú stofnun hins opinbera sem kaupir hvað mest af þjónustu frá einkaaðilum ár hvert. Vísir
Erfitt er að sjá að viðskipti nokkurra einkafyrirtækja við Vegagerð ríkisins á síðustu árum standist lög eða siðareglur stofnunarinnar. Dæmi eru um að starfsmenn Vegagerðarinnar hafi gert viðskiptasamninga, sem samtals nema á sjöunda hundrað milljónir króna, við ættingja, maka og jafnvel sig sjálfa. Þetta kemur fram í umfjöllun Kastljóss á RÚV nú í kvöld. Viðskipti Vegagerðarinnar í þremur tilfellum voru þar skoðuð sérstaklega, en Vegagerðin er sú stofnun hins opinbera sem kaupir hvað mest af þjónustu frá einkaaðilum ár hvert.Samningar gerðir við bróður deildarstjóra án útboðsÍ fyrsta lagi voru teknir fyrir samningar við fyrirtækin Samrás og Fjarorku, sem hafa á síðustu árum átt viðskipti við Vegagerðina fyrir rúmar 400 milljónir króna. Guðlaugur Jónasson er eigandi að báðum þessum fyrirtækjum en bróðir hans, Nicolai Jónasson, er deildarstjóri þjónustudeildar Vegagerðarinnar. Öll viðskipti við Samrás og Fjarorku hafa farið í gegnum þessa þjónustudeild og ekkert þeirra hundruða verka sem Vegagerðin hefur falið fyrirtækjunum tveimur frá árinu 2005 var boðið út. Þá segir jafnframt í umfjöllun RÚV að Nicolai hafi unnið að þróunarvinnu með bróður sínum og fyrirtækjum hans samhliða því að eiga í samskiptum við hann vegna framkvæmdar viðskiptanna við Vegagerðina. Þess má geta að opinberum starfsmönnum er bannað að koma að viðskiptum við ættmenni sín, eða umfjöllun um þau, samkvæmt siðareglum Vegagerðarinnar. Þá kveða lög um opinber innkaup á um það að öll viðskipti yfir 11,5 milljónum skuli boðin út, en viðskiptin við Fjarorku og Samrás voru í nokkrum tilfellum langt yfir þeim mörkum.Fyrirtæki fyrrverandi starfsmanns fyrir valinuEinnig var í þættinum fjallað um greiðslur Vegagerðarinnar til verktakafyrirtækisins Hnjóts hf. Hnjótur var lengi í eigu Magnúsar Guðbjartssonar, fyrrverandi starfsmanns Vegagerðarinnar á Suðvestursvæði, sem kemur enn fram sem talsmaður fyrirtækisins í samskiptum við Vegagerðina. Þrjú fyrirtæki tengd Magnúsi hafa fengið 205 milljónir króna fyrir ýmis verk sem ekki voru boðin út. Einstaka greiðslur til þessara fyrirtækja eru að vísu ekki það háar að Vegagerðinni hafi þurft að bjóða framkvæmdirnar út lögum samkvæmt. Þó furðast keppinautar Hnjóts sig á því að engin útboð eða verðkannanir hafi farið fram og hafa sumir gert athugasemdir við þau. Enginn verktaki hefur unnið jafn mörg verk fyrir Vegagerðina og Hnjótur á þessu Suðvestursvæði á undanförnum árum.Samdi við sitt eigið fyritæki um ræstingarKaup Vegagerðarinnar á ræstingarþjónustu fyrir útibú stofnunarinnar í Hafnarfirði eru ekki síður athyglisverð. Ræstingar húsnæðis Vegagerðarinnar í Hringhellu hafa frá árinu 2007 verið í höndum Höllu Rúnar Ólafsdóttur og síðar fyrirtækisins HRÓ slf. Vegagerðin hefur greitt um tíu milljónir króna til þessara aðila fyrir þessa þjónustu. Deildarstjóri þessa útibús er Bjarni Stefánsson, eiginmaður Höllu og meðeigandi hennar í HRÓ. Bjarni hefur á þessum tíma haft umsjón með kaupum á ræstingarþjónustu frá eigin fyrirtæki og átt í samskiptum við konu sína sem fulltrúi Vegagerðarinnar um þessi kaup. Hann tilkynnir Höllu eiginkonu sinni í tölvupósti árið 2011 að Vegagerðin hafi ákveðið að segja upp samningi við fyrirtæki þeirra beggja, þakkar henni fyrir samstarfið og tilkynnir henni um að fyrirtækið geti gert tilboð í verkið. HRÓ gerði vissulega tilboð í verkið og var það samþykkt á fundi Vegagerðarinnar, þar sem Bjarni sat, stuttu síðar. Það var litlu lægra en tilboð ræstingarfyrirtækisins Hreint, sem sendi inn tilboð sitt tveimur dögum fyrir fundinn. Tilboð HRÓ var að sögn Vegagerðarinnar lagt fram munnlega og því liggur ekki fyrir hvort það barst áður en Bjarni fékk í hendur tilboð keppinauta fyrirtækis síns og konu sinnar.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira