Listasýning sett upp á salerni Garðar Örn Úlfarsson skrifar 19. desember 2014 11:00 Í Núllinu Kvennasalernið er 37 fermetrar.Mynd/Reykjavíkurborg
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær ósk Nýlistasafns Íslands um leigu á gamla kvennasalerninu í Bankastræti 0. Nota á aðstöðuna til sýningarhalds. Umrædd not af Bankastræti 0 hafa áður komið til umræðu. Í apríl 2012 sagði Fréttablaðið frá áhuga listamanna á að byggingarfulltrúi leyfði afnot af húsnæðinu sem þá hafði verið lokað um árabil. „Ef leyfi fæst munum við síðan auglýsa aðstöðuna til leigu á svipaðan hátt og til dæmis gamla turninn á Lækjartorgi,“ sagði þá Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi á framkvæmda- og eignasviði við Fréttablaðið. Í umsögn menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar segir að Nýlistasafnið sé einstakt í menningarflóru borgarinnar. Safnið sé eitt elsta starfandi listamannarekna listasafn í Evrópu og að safnið sé sýningarstaður, vettvangur uppákoma, umræðna og gjörninga. Auk sýninga og viðburða safnar, varðveiti og miðli Nýlistasafnið heimildum um samtímalistasögu. Þá gæti það kallast skemmtilega á við Nýlistasafnið í Breiðholti. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir í umsögn sinni að Listasafnið styðji áform um að breyta kvennasnyrtingunni í sýningarrými fyrir samtímalist. Jarðhúsið sé óvenjulegt rými og að erfitt sé að ímynda sér hvaða starfsemi gæti nýtt það á eins skapandi og skemmtilegan hátt og Nýlistasafnið. Listamenn sem safnið starfi með séu vanir að gera staðbundin verk gagngert fyrir ákveðin rými og að færa sér í hag aðstæður sem myndu reynast öðrum fjötur um fót. Þá sé sýningarrýmið líklegt til að vekja nýjar hugmyndir og örva unga listamenn til nýrra tilrauna. Fyrirkomulagið myndi styðja menningarlíf í miðbænum og kynna Reykjavík sem framsækinn og áræðinn vettvang óvæntra tækifæra.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira