AGS hvetur til varfærni við afnám hafta Heimir Már Pétursson skrifar 19. desember 2014 13:26
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir skynsamlegt að taka varfærin skref til losunar fjármagnshafta í ljósi ástands heimsbúskaparins jafnhliða áframhaldandi stefnufestu og styrkingu innviða. Útlit sé fyrir að einkaneysla muni styrkjast vegna skuldaleiðréttingar stjórnvalda og lægra innflutningsverðs. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kynnti í morgun álit sitt á stöðu efnahagsmála á Íslandi og er þetta fimmta eftirfylgniskýrsla sjóðsins vegna efnahagsáætlunar Íslands og AGS. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur til varfærni við losun gjaldeyrishafta í ljósi ástands heimsbúskaparins jafnhliða áframhaldandi stefnufestu og styrkingu innviða, en þar með talinn sé sjálfstæður seðlabanki, haldgóðar ríkisfjármálareglur og traustar varúðarreglur og varúðarráðstafanir, eins og segir í álitinu. AGS segir helsta viðfangsefnið á sviði hagstjórnar sé að styrkja fjárhagsleg tengsl Íslands við umheiminn. Árangur á því sviði sé forsenda fyrir hagvexti og hagkvæmari fjárfestingarkostum fyrir heimili og fyrirtæki landsins. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að enn séu veikleikar fyrir hendi í íslensku efnahagslífi. Eftirmál fjármálaáfallsins séu enn nokkur og hafi það áhrif á hagvöxt og dragi úr ytri stöðugleika. Óvissa ríki enn vegna losunar fjármagnshafta, töluverðs þrýstings á launahækkanir í komandi kjaraviðræðum, lagalegra viðfangsefna vegna skatta á fjármálafyrirtæki og framkvæmd verðtryggingar og veikrar stöðu Íbúðalánasjóðs. Peter Dohlman nýr formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir þrýsting verkalýðsfélaga á launahækkanir skiljanlegar. En launahækkanir umfram framleiðni feli í sér hættu. “Þetta er mikilvægt fyrir land sem er að reyna að vinna sig út úr gjaldeyrishöftum. Ef samkeppnishæfni landsins verður veikt getur það hægt á jákvæðri þróun á öðrum sviðum. Aðalmálið er að aðilar vinnumarkaðarins reyni að finna leið fram á við í launamálum í takti við framleiðniþróunina,” segir Dohlman. Þá segir Dohlman jákvætt að stjórnvöld hafi þá stefnu að hafa afgang á fjárlögum og nýlegar endurbætur á virðisaukaskattskerfinu séu skref í rétta átt. Nánar verður fjallað um skýrslu AGS í kvöldfréttum.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira