Arðgreiðslur Lv hafa aldrei verið hærri Svavar Hávarðsson skrifar 9. desember 2014 07:00 Næsta verkefni Landsvirkjunar gæti verið stækkun Búrfellsvirkjunar. mynd/lv
Hæstu arðgreiðslur Landsvirkjunar frá stofnun fyrirtækisins hafa verið greiddar í ríkissjóð síðastliðin þrjú ár. Væntingar eru um hærri arðgreiðslur á næstu árum. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði á nýafstöðnum haustfundi fyrirtækisins að Landsvirkjun gerði ráð fyrir að auka arðgreiðslur til ríkisins eftir þrjú til fjögur ár. Á fjórum árum hefur verið fjárfest í nýjum orkumannvirkjum fyrir 50 milljarða króna og skuldir verið greiddar niður um annað eins á sama tíma. Í samantekt Landsvirkjunar fyrir Fréttablaðið um arðgreiðslur fyrirtækisins frá stofnun þess kemur í ljós að greiðslurnar í ríkissjóð voru rétt tæpir fimm milljarðar árin 2012 til 2014, eða 13 til 14 milljónir Bandaríkjadala árlega. Fyrstu árin eftir hrun greiddi Landsvirkjun ekki arð, en öll árin og stighækkandi á árunum 1997 til 2008, þegar greiðslurnar voru hæstar fram til þess tíma eða 7,8 milljónir Bandaríkjadollara – eða milljarður króna á núvirði. Hörður segir að arðgreiðslur tímabilsins fyrir hrun þurfi að skoðast í ljósi mikilla fjárfestinga á þeim tíma. „Ég geri ráð fyrir að það sé skýringin, með miklum fjárfestingum dregur úr arðgreiðslugetu. Fyrstu árin eftir hrun studdi eigandinn fyrirtækið með því að taka ekki út arð,“ segir Hörður. Spurður um hversu háar arðgreiðslurnar gætu orðið segir Hörður að niðurgreiðsla lána gefi vissa hugmynd um arðgreiðslugetu Landsvirkjunar. Ef ekki þyrfti að greiða lán niður, heldur að mögulegt væri að viðhalda þeim, þá hefði arðgreiðslugetan verið 50 milljarðar undanfarin fjögur ár. Þá sé eftir að taka vilja eigandans inn í jöfnuna, og hvort uppbygging eða arðgreiðslur eru forgangsatriði. Um mitt ár 2011 birti GAM Management hf. [GAMMA] úttekt á efnahagslegum áhrifum af rekstri og arðsemi Landsvirkjunar til ársins 2035. Niðurstöður skýrslunnar voru að greiðslur til ríkissjóðs gætu numið frá 30 milljörðum króna innan fárra ára – háð þróun rafmagnsverðs og fjárfestinga. „Miðað við þá hækkun raforkuverðs sem þar var lögð til grundvallar, og við höfum bent á að sé möguleg, þá hefur það mjög jákvæð áhrif á arðgreiðslugetuna. Sú hækkun lendir aðallega á alþjóðlegum stórfyrirtækjum, og þó fyrstu viðbrögð um hækkun raforkuverðs til almennings séu neikvæð þá verður orkuverð hér áfram lágt.“
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Fleiri fréttir Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Sjá meira