Ekki dæmd til frekara nálgunarbanns gagnvart lögreglumanni Bjarki Ármannsson skrifar 9. desember 2014 17:59 Hæstiréttur telur skilyrðum fyrir nálgunarbanni ekki fullnægt. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að framlengja ekki nálgunarbann yfir konu sem tvisvar áður hefur verið dæmd í nálgunarbann gagnvart lögreglumanni fyrir áreiti og hótanir í garð hans. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vildi að konan yrði látin sæta nálgunarbanni í sex mánuði til viðbótar en hvorki héraðsdómur né Hæstiréttur féllust á kröfuna. Forsaga málsins er sú að lögreglumaðurinn hafði afskipti af konunni í starfi sínu sem leiddi til þess að hún var handtekin. Í greinargerð lögreglu segir að konan hafi í kjölfarið brotið gegn manninum þannig að hún hlaut þrjátíu daga fangelsisdóm fyrir brot gegn valdstjórninni. Í kjölfar þess að konan var handtekin var hún látin sæta nálgunarbanni frá júlí 2013 fram í janúar á þessu ári. Hún varð þó uppvís að því að klifra upp á svalir á heimili lögreglumannsins á meðan nálgunarbannið var í gildi og safna persónuupplýsingum um hann og fjölskyldu hans. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði svo í maí síðastliðnum að konunni yrði aftur gert að sæta nálgunarbanni en þá á hún að hafa valdið honum ónæði með símhringingum og sendingu smáskilaboða, mestmegnis af kynferðislegum toga. Lögregla segir konuna tvisvar hafa nálgast manninn á almannafæri á meðan þessu nálgunarbanni stóð en í úrskurði héraðsdóms frá því í síðustu viku segir að skýrslur af þessum tveimur atvikum teljist ekki sanna vafalaust brot á nálgunarbanninu. Í dómi Hæstaréttar frá því í dag segir að ekki verið ráðið með órækum hætti að skilyrðum sé fullnægt til að dæma konuna til áframhaldandi nálgunarbanns.
Mest lesið „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu metinn 4,1 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Sjá meira