Mannleg mistök ástæða þess að Brúarfoss rak stjórnlaust að bryggju Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. október 2014 17:46 „Nefndin telur einnig að skort hafi verulega á góð og örugg samskipti milli stjórnenda þegar ljóst var að skipið svaraði ekki stjórntökum.“ Vísir/GVA
Í skýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa sem birt var í dag er fjallað um atvik sem átti sér stað í Klettahöfn í janúar í fyrra en þá rak flutningaskip Eimskipa, Brúarfoss, stjórnlaust að bryggju í Sundahöfn. Í skýrslunni segir orðrétt: „Skipverjar voru búnir að láta sleppa öllum landfestum um kl. 07:05 og hafnarstarfsmenn fóru strax af vettvangi þegar því var lokið. Þegar skipstjóri ætlaði að fara að beita aðalvél virkaði stigningin ekki fyrir skiptiskrúfuna og skipið fór að reka stjórnlaust til vesturs í höfninni. [...] Haft var samband við vélarúm en ekki kom í ljós hvað var að. Brúarfoss rakst, kl. 07:08, með stjórnborðshornið á stefni Dettifoss sem einnig lá við Klettsbakka. Við það skemmdist rekkverk á Brúarfossi og minniháttar skemmdir urðu á stefni Dettifoss.“ Skipið snerist í höfninni svo að skutur þess stefndi til norðvesturs og beint á bryggjuna. Skipstjórinn reyndi að koma skipinu á milli bryggjukanta en það tókst ekki.Verulega skorti á góð og örugg samskipti milli stjórnenda „Kl. 07:10 voru bæði akkeri látin falla en ekki tókst að stöðva skipið og um kl. 07:15 lenti það með skutinn nokkuð harkalega á tréhluta bryggjunnar á Korngarðinum. Skuturinn braut sig um fjóra metra inn í bryggjuna [...] en um þetta leyti fóru stjórntök að virka en skemmdir urðu á stýri skipsins. Brúarfoss var því fastur með skutinn inn í bryggjunni.“ Dráttarbáta þurfti til að losa skipið sem komu á staðinn 25 mínútum eftir áreksturinn við bryggjuna. Brúarfoss var svo dreginn að bryggju við Klettsbakka. Í áliti rannsóknarnefndarinnar í lok skýrslunnar segir: „Orsök atviksins er röð mannlegra mistaka og að ekki var farið eftir öryggisreglum skipsins um brottför úr höfn. Nefndin telur einnig að skort hafi verulega á góð og örugg samskipti milli stjórnenda þegar ljóst var að skipið svaraði ekki stjórntökum. Sérstök ábending: Nefndin hvetur stjórnendur skipa til að tileinka sér notkun gátlista við störf sín og nota staðlað samskiptakerfi milli starfsstöðva til að tryggja öryggi við komu og brottfarir.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira