Erfitt þegar skipulagsdagar skólanna eru ekki þeir sömu Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 23. október 2014 09:00 Á ungbarnaleikskólanum. Hafdís Ósk Pétursdóttir með Degi Kára sem er 18 mánaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þegar vetrarfrí elsta barns Hafdísar Óskar Pétursdóttur og Sveinbjörns Jónssonar hófst á dögunum áttu þau ekkert frí inni frá síðasta sumri. „Það var því lítið sem við gátum gert til að eiga saman fjölskyldustundir,“ segir Hafdís sem á þrjú börn, 7, 3 og 1 árs. Yngri börn Hafdísar, sem býr í Reykjavík, eru í leikskóla, það eldra í hverfisleikskóla en það yngra á ungbarnaleikskóla þar sem Hafdís er deildarstjóri. Ekki er víst að báðum leikskólunum verði lokað á sama tíma í sumar, að sögn Hafdísar. „Það er nefnilega kosið um það í öðrum leikskólanum hvenær sumarsins eigi að hafa lokað. Næsta sumar gæti þess vegna orðið höfuðverkur og ég sé fram á að við hjónin tökum hluta af sumarfríinu okkar hvort í sínu lagi til að ná örugglega að spanna allt sumarfrí barnanna. Við munum væntanlega ekki eiga neitt frí inni næsta vetur sem gott væri að eiga vegna vetrarfrís elsta barnsins og skipulagsdaga í skólum allra barnanna.“ Skipulagsdagar í grunnskóla og leikskólum barnanna dreifast að mestu leyti, að sögn Hafdísar. „Af sex skipulagsdögum í hverfisleikskólanum eru þrír sameiginlegir með grunnskólanum. Það er gott að fá þessa þrjá daga en auðvitað væri best að þeir væru allir sameiginlegir en ég hef vissan skilning á því hvers vegna svo er ekki. Grunnskólinn hefur skipulagsdaga sem næst fríum eins og jólafríi, páskafríi og sumarfríi. Þessir skipulagsdagar henta ekki leikskólunum sem fá fólk til að flytja fyrirlestra á sínum skipulagsdögum. Það er erfiðara að fá fyrirlesara í kringum frí.“ Skipulagsdagarnir í grunnskólanum eru talsvert fleiri en í hverfisleikskólanum en skipulagsdagarnir í ungabarnaleikskólanum þar sem Hafdís starfar eru sex eins og í hverfisleikskólanum en ekki allir þeir sömu. „Leikskólinn sem ég starfa í er sjálfstæður skóli sem tekur á móti börnum úr öllum hverfum. Hann getur því ekki miðað við skipulagsdaga grunnskólanna,“ greinir Hafdís frá. Hún segir foreldrana skipta á milli sín eins og hægt er að vera heima með börnunum þegar skólar eru lokaðir. „Fyrir utan jóla- og páskafrí þurfum við að manna um það bil 10 daga. Ég hef leyfi til þess að taka börnin með mér í vinnuna en þau geta ekki verið hjá mér í vinnunni allan daginn. Ég hugsa að ég verði heima fimm daga í vetur vegna skipulagsdaga og vetrarfrís. Maðurinn minn verður heima alla sex dagana þegar skipulagsdagar eru á ungbarnaleikskólanum því að þá þarf ég að vera í vinnunni. Svo erum við svo heppin að eiga góðar ömmur sem hjálpa til eins og þær geta.“ Hafdís tekur það fram að skipulagsdagar séu nauðsynlegir í skólastarfi en hún veltir því fyrir sér hvort vinnumarkaðurinn þurfi ekki að laga sig að breyttum aðstæðum. „Í nágrannalöndum okkar er gert ráð fyrir að foreldrar fái frí á skólafrídögum til að geta verið með börnunum sínum. Það mætti einnig velta því fyrir sér hvort fólk ætti ekki að fá lengra sumarfrí á meðan börnin eru ung og þurfa mikla umönnun og dögunum fækkaði frekar þegar börnin væru betur í stakk búin til að hugsa um sig sjálf.“
Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira