Sakar ráðherra um að vinna ekki heimavinnuna sína Heimir Már Pétursson skrifar 23. október 2014 13:27 Össur Skarphéðinsson vill að þegar verði hafnar viðræður við Breta um lagningu raforkustrengs til Bretlands. Iðnaðarráðherra segir að áður verði að skoða málið betur hér heima. vísir
Fyrrverandi utanríkisráðherra segir ekkert vera að gerast varðandi mögulega raforkusölu Íslendinga um sæstreng til Evrópu vegna þess að iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafi ekki unnið heimavinnuna sína. Ráðherra segir þetta alrangt en kanna verði málið betur hér innanlands áður en formlegar viðræður um raforkusöluna verði teknar upp. Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði iðnaðar- og viðskiptaráðherra út í það á Alþingi í morgun hvað væri að gerast varðandi mögulega lagningu sæstrengs til flutnings raforku til Evrópu og þá sérstaklega Bretlands. Samband evrópskra flutningsfyrirtækja á orku hafi nýlega birt skýrslu með samanburði á 100 verkefnum. „Og niðurstaðan var sú að íslenska verkefnið bar af varðandi möguleika á arðsemi,“ sagði Össur. Þá hafi iðnaðarráðherra kynnt niðurstöðu ráðgjafahóps á Alþingi í febrúar sem bar saman við skýrslu Hagfræðistofnunar um sama mál. „Og laut að því að það væri afar mikilvægt fyrir Íslendinga að hefja könnunarviðræður við bresk stjórnvöld og fá úr því skorið hverjir möguleikar Íslands væru,“ sagði Össur. Nauðsynlegt væri að komast að því hvort hægt væri að gera langtímasamninga við Breta samkvæmt sérstöku ívilnunarkerfi þeirra. Össur spurði Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra hvenær hún hyggðist hefja viðræður um lagningu sæstrengs við Breta. Hún minnti á að atvinnuveganefnd Alþingis hefði skilað áliti sínu varðandi þessi mál. „Í framhaldi af því átti ég viðræður við breska orkumálaráðherrann þar sem við fórum yfir þessi mál. Þar, eins og marg oft hefur koið fram, kom fram áhugi Breta á þessu viðfangsefni,“ sagði Ragnheiður Elín. Hins vegar þyrfti að ræða þetta mál og skoða það frekar hér innanlands og breski ráðherrann hefði sýnt skilning á því. „Hvað varðar spurningu þingmannsins um könnunarviðræður við Bretland, þá tel ég ekki tímabært á þessu stigi málsins, áður en við höfum sjálf aflað okkar þeirra upplýsinga sem ég nefndi, að fara í viðræður, hvorki við bresk stjórnvöld né aðra,“ sagð Ragnheiður Elín. „Hæstvirtur ráðherra segir að það sé ekki tímabært að fara i þessar viðræður vegna þess að hún hefur ekki unnið heimavinnuna sína. Þannig er það,“ sagði Össur eftir að hafa hlýtt á svör ráðherrans. „Virðulegur forseti, ég verð að lýsa mig algerlega ósammála háttvirtum þingmanni. Það er verið að vinna þetta mál mjög vel. Ég leyfi mér að fullyrða það og það er rangt sem kemur fram hjá þingmanninum að við höfum ekki verið að vinna þetta og að ekkert hafi gerst í þessu máli. Það er rangt,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir. En í máli hennar kom einnig fram að hún væri að vinna ítarlegt skriflegt svar við fyrirspurn frá Össuri um þetta sama mál.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Sjá meira