„Landspítalinn verður ekki rekinn án lækna“ Stefán Árni Pálsson skrifar 23. október 2014 22:50 VISIR/GVA
Stjórn Félags læknanema harmar því að Læknafélag Íslands og Skurðlæknafélag Íslands sjái sig knúin til þess að boða til verkfalls en þetta kemur fram í ályktun frá félaginu.Ekkert virðist geta komið í veg fyrir að verkfall lækna hefjist á mánudaginn eftir að samningafundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara rann út í sandinn í dag. Formaður samninganefndar lækna segir tilboð stjórnvalda óbreytt og enn beri því mikið í milli. Næsti boðaði fundur deiluaðila er á mánudaginn, en á miðnætti sama dag hefjast fyrstu verkfallsaðgerðir lækna. Hver vinnustöðvun mun standa yfir í tvo sólarhringa í senn á sjö vikna tímabili. Er þetta í fyrsta sinn sem læknar á Íslandi ákveða að nýta sér takmarkaðan verkfallsrétt sem komið var á fyrir tæpum 30 árum. Náist samningar ekki í tæka tíð munu læknar sem starfa samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands hefja verkfall næstkomandi mánudag. „Ljóst er að verkfall lækna hafi í för með sér áhrif á starfsemi Landspítalans, sjúklinga og aðstandendur. Einnig er ljóst að verkfall hafi þar að auki í för með sér skerðingu á gæði klínískrar kennslu og komi, á þeim tímum sem verkfall er boðað, í veg fyrir klínískt nám sem nauðsynlegt er til að útskrifa lækna. Samningar eru því bráður vandi sem þarf að sinna hið snarasta.“ Í ályktuninni segir að eigi Landspítalinn að sinna þeirri þjónustu sem stofnuninni er ætluð blasir við að bæta verði kjör starfsmanna spítalans. „Landspítalinn verður ekki rekinn án lækna. Ekki verður hann heldur rekinn án þeirra framtíðarlækna sem útskrifast á næstu árum og fylgjast grannt með framvindu samningaviðræðna LÍ og samninganefndar ríkisins. Stjórn Félags læknanema lýsir því yfir fullum stuðningi við kröfum Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands. Félagið hvetur jafnframt alla lækna til að virða verkfall á meðan á því stendur.“ Stjórn Félags læknanema segir að glufa hafi myndast í mannauð íslensks heilbrigðiskerfis. „Íslenskir læknar erlendis sjá sér ekki fært um að flytja heim að loknu sérnámi og sérfræðilæknar hérlendis sjá sér ekki fært um að starfa hér áfram við óbreyttar aðstæður. Dýrmæt reynsla tapast við brottflutning starfsfólks og töf á heimkomu sérfræðimenntaðra lækna. Mannekla vegna viðvarandi, dræmra kjara hefur gríðarlegan kostnað í för með sér fyrir samfélagið, sjúklinga og aðstandendur þeirra.“ Stjórn Félags læknanema lýsir því yfir þungum áhyggjum á framgöngu samningaviðræðna. Félag læknanema skorar á samninganefnd ríkisins og ríkið sjálft til að leysa viðvarandi kjaravanda lækna sem starfa á Landspítalanum með því að mæta kröfum Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira