Innlent

Fékk heilablóðfall í ofsaveðri

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir skrifar
Veður og færð geta spilað stórt hlutverk þegar fólk slasast eða veikist alvarlega, sérstaklega á landsbyggðinni. Því fékk Fannar Baldursson, 38 ára fjölskyldufaðir í Ólafsvík, að kynnast þegar hann fékk heilablóðfall á heimili sínu í versta óveðri á suðvesturhorninu í meira en áratug.

„Þegar hann vaknaði um morguninn gat hann ekki talað,“ segir Rán Kristinsdóttir eiginkona Fannars sem hringdi samstundis í 112.

Þyrla Landhelgisgæslunnar komst ekki í loftið sökum veðurs og því þurfti að flytja Fannar landleiðina til Reykjavíkur, en vindhviður fóru í 70 metra á sekúndu sums staðar á leiðinni.

„Staðreyndin er sú að við vorum að fara með krítískan sjúkling út í veður sem enginn fer út í með “fúlle fem“,“ segir Andri Heide læknir sem var með í för.

Fjallað verður um málið í fimmta þætti af Neyðarlínunni sem sýndur verður á Stöð 2 á sunnudagskvöld klukkan 20.10. Þátturinn verður í opinni dagskrá líkt og öll dagskrá Stöðvar 2 um helgina, vegna 28 ára afmæli stöðvarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×