Eyjamenn þurfa að fá lánað röntgentæki frá dýralækni 19. mars 2014 19:32 Gunnar segir tækjakostinn á Heilbrigðisstofnuninni ekki vera góðan.
Máltækið „lengi getur vont versnað“ á vel við um ástandið í Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja um þessar mundir. Röntgentæki stofnunarinnar hefur verið úrskurðað ónýtt og hefur ekki verið nothæft alla þessa viku. Vestmannaeyingar þurfa að fá lánað röntgentæki frá dýralækni í Reykjavík, svo slæmt er ástandið. Ofan á þessi vandamál bætast svo lélegar samgöngur vegna yfirvinnubanns áhafnar Herjólfs. Setið er um miða í Herjólf, vegna færri ferða og einnig er erfitt að ná í flugmiða. Viðgerðamaður frá Reykjavík, sem átti að koma til Eyja á mánudag þurfti að bíða í rúman sólarhring eftir fari. Hann komst loks til Eyja, og gat litið á röntgentækið sem haldið var að væri bilað. En það reyndist ónýtt.„Allt að hrynja“Gunnar K. Gunnarsson er framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunnar Vestmannaeyja. Hann segir ástandið í tækjamálum vera hrikalegt. „Hér er allt að hrynja og enginn peningur til að kaupa nýtt. Við þurfum að fá tæki lánað frá dýralækni til bráðabirgða. Við vonumst svo til að fá nýtt röntgentæki eftir mánaðarmót, þegar Orkuhúsið endurnýjar tæki hjá sér. Það tæki dugar okkur vonandi í tvö til þrjú ár,“ segir Gunnar. Vestmannaeyingar nota röntgentækið sitt nokkuð oft á dag að sögn Gunnars. „Það er erfitt að segja hversu oft nákvæmlega, en ég myndi ætla að það sé í kringum tíu til tólf sinnum á dag. Þetta hefur því skapað heilmikil vandræði.“Samgöngur slæmar Yfirvinnubann áhafnar Herjólfs hafa haft áhrif á þetta ástand í Heilbrigðisstofnun Eyjamanna. Viðgerðamaðurinn frá Reykjavík átti erfitt með að komast til Eyja og mun eiga jafnvel erfiðara með að komast þaðan. „Við fáum lánstækið í hús um fjögurleytið á morgun. Þá á eftir að setja allt upp. Viðgerðamaðurinn þarf að fara á fund með erlendum gestum um helgina og má ekki missa af honum. Við vonumst til þess að Víkingur sigli til Landeyjahafnar á morgun, annars þarf hann að fá einkaflugvél til að sækja sig svo hann komist á fundinn,“ segir Gunnar.Engir smápeningar Gunnar segist vera búinn að ræða við heilbrigðisráðuneytið og láta vita af slæmum tækjakosti í Eyjum. „Við erum búin að kalla látlaust eftir meira fjármagni. Hér eru tæki í slæmu ástandi. Það er í raun allt að hrynja núna.“ Hann segir stofnunina þurfa mikið fjármagn til að endurnýja tækjakostinn. „Þetta eru stórar fjárháðir sem umræðir. Svona tæki eru dýr. Til dæmis er lampi í einu tæki bilaður hjá okkur. Lampinn kostar tíu milljónir og nýtt tæki fjörutíu milljónir. Þetta eru engir smápeningar sem þetta kostar,“ segir Gunnar.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira