Alfarið á móti færslu þjónustunnar frá Landmannalaugum Hrund Þórsdóttir skrifar 27. júní 2014 19:29
Forsvarsmenn Ferðafélags Íslands eru alfarið á móti færslu þjónustu frá Landmannalaugum og segja ótækt að biðja menn að ganga frá eigum sínum bótalaust. Hægt sé að ná sama árangri og færsla myndi skila, með einfaldari og hagkvæmari hætti.Eins og Stöð 2 hefur áður fjallað um gerir rammaskipulag fyrir hálendið norðan Mýrdalsjökuls ráð fyrir að tjaldsvæði og gistiskálar færist út fyrir hjarta Landmannalauga. Ferðafélag Íslands hefur byggt upp þjónustuna og talsmenn færslunnar segjast vilja áframhaldandi samstarf. „Þá á ég við að við erum ekki að reka neinn úr Landmannalaugum en við viljum færa þá til innan svæðisins,“ segir Kristinn Guðnason, sem situr í nefnd um framtíðarskipulag Landmannalauga. Forsvarsmenn Ferðafélags Íslands eru hins vegar alfarið á móti færslu þjónustunnar. „Það segir sig sjálft og þann lagagrunn höfum við skoðað, að það er ekkert hægt að ganga að eignum og hagsmunum manna og biðja þá um að gjöra svo vel að fara, bótalaust,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands. Hann segir hægt að ná sama árangri og færslan myndi skila, með einfaldari og hagkvæmari hætti. Tjöld og bílar yrðu þá færð út fyrir varnargarð svæðisins annars vegar og ána hins vegar, til að skapa opnari ásýnd. „Fólk vill vera í Landmannalaugum. Í könnunum kemur fram að 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína þarna og við eigum auðvitað að hugsa um hagsmuni ferðamannanna um leið og við hugsum um verndun náttúrunnar og umhverfisins,“ segir Ólafur. Hann kveðst finna mikla andstöðu við færsluna, bæði hjá ferðamönnum og ferðaskrifstofum. Aðspurður segir hann of snemmt að svara því hvort Ferðafélagið fari í mál ef af færslunni verði, en segir þó ljóst að gæta þurfi hagsmuna félagsmanna. „Við getum ekki gengið frá fjárfestingum upp á meira en milljarð sem við höfum byggt upp á 60 árum. Að auki þyrftum við svo að byggja upp fyrir hundruð milljóna annars staðar, þarna erum við kannski að tala um einn og hálfan til tvo milljarða. Menn ganga ekkert þegjandi og hljóðalaust frá því,“ segir Ólafur.
Tengdar fréttir Þörf á róttækum aðgerðum í Landmannalaugum Talsmenn færslu þjónustunnar í Landmannalaugum út fyrir svæðið segja tal um gróða af ferðaþjónustu marklaust ef ekki megi leggja fjármagn í staði eins og Landmannalaugar. 25. júní 2014 19:30 Bregðast þarf við strax svo ekki fari illa í Landmannalaugum Landmannalaugar eru á rauðum lista Umhverfisstofnunar. Fjöldi ferðamanna þar tvöfaldaðist á áratug og enn fjölgar þeim. 24. júní 2014 20:00 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira
Þörf á róttækum aðgerðum í Landmannalaugum Talsmenn færslu þjónustunnar í Landmannalaugum út fyrir svæðið segja tal um gróða af ferðaþjónustu marklaust ef ekki megi leggja fjármagn í staði eins og Landmannalaugar. 25. júní 2014 19:30
Bregðast þarf við strax svo ekki fari illa í Landmannalaugum Landmannalaugar eru á rauðum lista Umhverfisstofnunar. Fjöldi ferðamanna þar tvöfaldaðist á áratug og enn fjölgar þeim. 24. júní 2014 20:00