Látinn fara og leystur út með 14,3 milljónum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 11. desember 2014 07:00 Bæjarritarinn í Mosfellsbæ hættir eftir þrettán ára starf með 14 milljónir í starfslokasamning. Fréttablaðið/GVA
Framkvæmdastjóri hins niðurlagða stjórnsýslusviðs Mosfellsbæjar er í sérverkefnum í fimm mánuði og fær síðan tólf mánaða biðlaun auk orlofsgreiðslna. „Hann er búinn að vinna lengi og á helminginn af þessu sem kjarasamningsbundin réttindi,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri um ástæður þess að Stefán Ómar Jónsson fær tólf mánaða biðlaun eftir að vera sagt upp sem framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Mosfellsbæjar. Staðan var lögð niður 1. nóvember vegna breytinga á stjórnsýslu bæjarins.Fær 1,1 milljón á mánuði Samkvæmt upplýsingum frá Mosfellsbæ nema mánaðarlegar greiðslur til Stefáns nú rúmlega 1,1 milljón króna. Þær skiptast þannig að föst laun eru 518 þúsund krónur, föst yfirvinna 511 þúsund, aksturspeningar 81 þúsund og 33 þúsund krónur eru fyrir fundasetu. Stefán var ráðinn sem bæjarritari í september 2001. Stöðuheitinu var síðar breytt í framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs.Haraldur Sverrisson bæjarstjóri útbjó starfslokasamning við bæjarritarann sem bæjarráð samþykkti síðan.Samkvæmt samkomulagi mun Stefán stýra endurbótum á svokölluðu OnePlayschool-kerfi og sinna fleiri sérverkefnum út mars á næsta ári. Eftir það fer Stefán á tólf mánaða laun án vinnuskyldu. Þar á eftir fær hann greitt orlof sem hann safnar á meðan hann vinnur að sérverkefnunum og á meðan hann er á biðlaunum. Með orlofinu fær Stefán því borguð minnst þrettán mánaðarlaun eða um 14,3 milljónir króna án þess að skila vinnuframlagi.Tillit til aldurs og starfsaldurs Haraldur bæjarstjóri segir það einfaldlega samkomulag bæjarráðs við Stefán að borga honum lengri biðlaun en samningur hans kveði á um. „Við erum að leggja niður sviðið hans og breyta hans högum. Hann er að verða sextugur og það er ekki hlaupið að því fyrir mann á þeim aldri að fá vinnu. Það er hlutur sem þarf að velta fyrir sér þegar gripið er svona inn í hjá fólki,“ segir Haraldur. Aðspurður segir bæjarstjórinn ekki um að ræða vinnureglu hjá bænum að bæta ofan á samningsbundin réttindi þegar fólk hættir eftir langt starf. Aðstæðurnar séu sérstakar. „Hann er ekki að hætta af sjálfsdáðum; það er verið að breyta skipulagi sem hefur áhrif á hans hlut. Ég hugsa að það séu mörg dæmi um svona hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum sérstaklega – það eru til miklu lengri starfslokasamningar þar.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira