80 prósent hafa notað farsíma undir stýri Stefán Árni Pálsson skrifar 11. desember 2014 14:25 Frá maí 2010 hefur þeim fækkað sem tala í síma undir stýri en þeim sem skoða internetið undir stýri hefur fjölgað. vísir/getty
MMR kannaði á dögunum farsímanotkun Íslendinga undir stýri síðastliðna 12 mánuði. Frá maí 2010 hefur þeim fækkað sem tala í síma undir stýri en þeim sem skoða internetið undir stýri hefur fjölgað. Þannig fækkaði þeim nokkuð sem sögðust hafa notað farsíma undir stýri fyrir símtöl án handfrjáls búnaðar. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðu 64,1% hafa talað í farsíma undir stýri án handfrjáls búnaðar, borið saman við 71,0% í maí 2010. Aftur á móti fjölgar þeim sem sögðust hafa notað farsíma undir stýri til að fara á internetið (t.d. skoða fréttasíður eða samfélagsmiðla). Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 10,0% hafa notað farsíma undir stýri til að fara á internetið, borið saman við 3,5% í maí 2010.mynd/mmrÞeim fækkar einnig sem sögðust hafa notað farsíma undir stýri til að skrifa/lesa sms, tölvupóst eða önnur skilaboð. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 21,1% hafa notað farsíma undir stýri til að skrifa/lesa skilaboð, borið saman við 26,4% í maí 2010. Nokkur munur á notkun farsíma undir stýri eftir kyni, aldri og stuðningi við stjórnmálaflokka Á heildina litið voru karlar líklegri en konur til að segjast hafa notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 85,5% karla hafa notað farsíma undir stýri, borið saman við 73,3% kvenna. Þeir sem tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) voru mun ólíklegri en þeir sem yngri eru til að hafa notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði. Þannig sögðust 61,3% þeirra sem tilheyrðu elsta aldurshópnum ekki hafa notað síma undir stýri, borið saman við 12,2% þeirra sem voru á aldrinum 30-49 ára. 43,2% þeirra sem tilheyrðu aldurshópnum 18-29 ára sögðust hafa notað farsíma undir stýri til að skrifa/lesa sms, tölvupóst eða önnur skilaboð síðastliðna 12 mánuði. Einstaklingar 18 ára og eldri voru valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR en þeir voru 1042 talsins, 18 ára og eldri. Hringt var út dagana 21. til 25. nóvember.mynd/mmr
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira