Innlent

Ritstjóri brýtur blað

Sveinn Arnarsson skrifar
Björn Þorláksson
Björn Þorláksson
Akureyri vikublað hefur verið að festa sig í sessi sem einn af betri héraðsmiðlum landsins síðustu misserin.

Björn Þorláksson, ritstjóri Akureyrar vikublaðs, varð fyrir því óláni um helgina að detta í hálku heima á Akureyri og braut hann annað herðablaðið.

Ekki er langt síðan annar ritstjóri, Sigurjón M. Egilsson, varð fyrir því óláni einnig að brjóta herðablað í bifhjólaslysi.

Þar með eru þeir komnir í ört stækkandi hóp svokallaðra „herðablaðamanna“.

Fréttablaðið sendir ritstjóranum á Akureyri vikublaði batakveðjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×