20 kennurum færra í menntaskólunum Sveinn Arnarsson skrifar 28. október 2014 07:00 Nemendaígildum fækkar um 1.608 milli fjárlagafrumvarpa 2014 og 2015. Fréttablaðið/Vilhelm
Kennurum við menntaskóla landsins mun að öllum líkindum fækka um 20, nái niðurskurður í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í menntamálum fram að ganga. Nemendaígildum fækkar um 1.608 í fjárlagfrumvarpi ársins 2015 samanborið við fjárlagafrumvarpið 2014, og ekki verður greitt fyrir nemendur eldri en 25 ára. Formaður Félags framhaldsskólakennara er áhyggjufullur yfir niðurskurðinum. „Það er augljóst að með þessum niðurskurðarhugmyndum ríkisstjórnarinnar í málefnum framhaldsskólanna mun kennurum við skólana fækka,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara.Guðríður Arnardóttir, formaður félags framhaldsskólakennara.Sú breyting verður á starfsemi menntaskólanna að nemendum sem náð hafa 25 ára aldri verður ekki gert kleift að stunda nám við framhaldsskóla landsins. Nemendaígildum í menntaskólum landsins mun fækka um 1.608 milli fjárlagafrumvarpa. Það þýðir að um 20 færri menntaskólakennarar verða við störf á næsta skólaári. Starfsgreinasamband Íslands er ósátt við fyrirhugaðar breytingar stjórnvalda. Í ályktun þess gagnrýnir sambandið breytingarnar sem „munu bitna af þunga á nemendum eldri en 25 ára. Sú hugmynd að fólk eldra en 25 ára sæki frekar inn í fullorðinsfræðsluna væri meira sannfærandi ef fjármagn fullorðinsfræðslunnar ykist í jöfnu hlutfalli. Svo er ekki og hættan er sú að nemendur eldri en 25 ára þurfi að greiða töluvert meira fyrir nám en áður.“ „Þegar maður skoðar skólana úti á landsbyggðinni, þar sem skólastjórnendur berjast við að halda tilætluðum fjölda nemenda í hverjum hóp, er einsýnt að þessar hugmyndir munu leggjast mun þyngra á þá skóla. Þannig getur þessi niðurskurður ýtt þeim skólum niður fyrir línuna og gert rekstrargrundvöll þeirra nærri óbærilegan,“ segir Guðríður. Hún telur þessi áform ekki hafa verið nægilega kynnt félagi framhaldsskólakennara. Það vanti til að mynda að skýra fyrir félaginu hvaða áhrif þessi áform stjórnvalda eigi að hafa í för með sér. „Það þarf einnig að ræða þetta í samhengi við áform menntamálaráðherra um styttingu náms til stúdentsprófs. Við þurfum að fara að skoða það hversu hratt ráðherra ætlar að hrinda í framkvæmd þessari hugmynd um þriggja ára stúdentspróf. En það er alveg ljóst að starfsmönnum mun fækka við þessi áform.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira