Innlent

Keyrðu að fyrsta snjóflóði vetrarins - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot
Vegfarandi náði myndbandi af fyrsta snjóflóði vetrarins þegar það féll á veginn í Ólafsfjarðarmúla í morgun. Elling Guðmundsson var á ferðinni í múlanum þegar snjóflóð féll yfir veginn fyrir framan hann.

„Það var bara að hrúgast upp þarna og það munaði engu að við hefðum lent inn í því,“ segir Elling í samtali við Vísi. Þeir snéru fljótlega við en Elling kallaði það nokkurs konar flótta.

Samkvæmt Vegagerðinni er búið að opna veginn um Ólafsfjarðarmúla, en þar er þó áfram varúðarstig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×