Segir bankana firra sig allri ábyrgð á verðbólgunni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. október 2014 18:39 Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags-og viðskiptanefndar. Vísir/Pjetur
Fyrir síðustu þingkosningar var kannski tvennt sem stóð upp úr þegar kom að kosningaloforðum Framsóknarmanna, annars vegar var það skuldaleiðréttingin og hins vegar afnám verðtryggingar. Einhver breyting virðist þó hafa orðið á eftirspurn heimilanna þegar kemur að lánum því fólk leitar æ meira í verðtryggð lán á sama tíma og stefnt er að því að afnema verðtrygginguna. Rætt var við Frosta Sigurjónsson, formann efnahags-og viðskiptanefndar Alþingis, í Reykjavík síðdegis í dag. Hann sagði að nafnvextir óverðtryggða lána hefðu ef til ekki alveg tekið tillit til þess að verðbólga hafi verið lág. Þau séu því hugsanlega hærri en þau ættu að vera. Þá sagði hann að ungt fólk sem sé að kaupa sína fyrstu íbúð taki frekar verðtryggt lán því það ráði frekar við afborganirnar af því fyrstu árin. Aðspurður hvort hann væri enn á því að afnema ætti verðtryggingu sagði hann svo vera. „Já, algjörlega. Það sem er að gerast núna þegar fólk er að taka verðtryggð lán er að bankarnir firra sig allri ábyrgð á verðbólgunni því þeir hafa minni og minni hag af því að gæta verðstöðugleika eftir því sem þeir eiga meira af verðtryggðum eignum. Þegar maður tekur verðtryggt lán í banka þá eignast bankinn verðtryggða eign sem er þetta skuldabréf. Bankar eru svo líka í þeirri stöðu að geta haft áhrif á verðbólguna með sinni peningamyndun og útlánastarfsemi,“ sagði Frosti. Hann sagði það líka geta gerst, ef að það kæmi verðbólguskellur, þá væru bankarnir stikkfrí og myndu bara eignast meira í húsum fólks í staðinn. „Það gerist alveg sjálfkrafa með verðtryggð lán en ef þetta eru óverðtryggð lán þá þurfa bankarnir að gæta sín á að hækka ekki vextina of mikið, þó að það komi verðbólguskellur, því þá getur fólk lent í vanskilum og það vilja bankarnir ekki. Bankarnir taka alltaf á sig hluta af skellinum þegar um nafnvexti er að ræða en það er ekki þannig þegar það eru verðtryggð lán. Þá eignast bankinn bara meira í húsinu þínu,“ sagði Frosti. Nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira