Erfitt að réttlæta tugprósenta launahækkun lækna Hjörtur Hjartarson skrifar 28. október 2014 19:30
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur óráðlegt að semja við lækna um tugprósenta launahækkun. Slíkt myndi valda verulegum titringi á vinnumarkaðnum sem aftur gæti orsakað verðbólgu og minni framleiðni. Samkvæmt heimildum fréttastofu lætur nærri að kröfur lækna séu um 36 prósenta launahækkun en tilboð stjórnvalda er hinsvegar fjarri því eða þriggja prósenta hækkun á launum. „Það er alveg ljóst að þarna eru mjög háar kröfur á ferðinni ef þessar tölur eru réttar og langtum hærri en hefur verið samið um á almennum vinnumarkaði. Ég held að það sé óhætt að reikna með því að slíkt gæti valdið verulegum titringi inn á vinnumarkaðinn ef samið yrði um slíkt við lækna,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Kjarasamningar ASÍ sem gerðir voru í desember í fyrra og í febrúar á þessu ári hljóðuðu upp á 2,8 prósent. Þeim viðmiðum hefur þó ekki verið fylgt að öllu leyti en kennarar sömdu um mun meiri hækkun, upp undir þrjátíu prósent. „Til þess að tilefni sé til fyrir svo mikilla breytinga hjá launum lækna þarf að sýna fram á að þeir hafi með einhverjum hætti dregist svo mikið aftur úr öðrum stéttum hér á landi.“ Þorsteinn óttast að ef gengið verður að kröfum lækna muni það leiða af sér ólgu á vinnumarkaðnum þar sem aðrar stéttir muni krefjast sömu launahækkana. Einungis ætti að ganga að kröfum lækna ef hægt væri að sýna fram á að þeir hafi dregist aftur úr með laun sín. „En prósentubreytingar af því tagi sem þarna er verið að ræða um sé langt út fyrir þann ramma sem hægt væri að réttlæta með einhverju slíku,“ segir Þorsteinn. Deiluaðilar funda í húsnæði ríkissáttasemjara á morgun.Næsti samningafundurinn í deilunni verður á morgun en annar dagur verkfallsins var í dag. Töluverði biðröð var á læknavaktinni í Kópavogi klukkan fimm síðdegis þegar opnað var þar. Kunnugir segja þó að fjöldinn hafi ekki verið meiri en á venjulegum degi. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Landspítalanum sagði í samtali við fréttastofu í dag að verkfallsaðgerðirnar hefðu valdið töluverðri röskun á þjónustunni í dag. Fresta þurfti 21 skurðaðgerð en ríflega þrjátíu aðgerðum var frestað í gær. Þá hafi allt gengið stóráfallalaust fyrir sig á bráðamóttöku Landspítalans. Á miðnætti leggja niður störf læknar á sjúkrahúsinu á Akureyri og á lyflækningasviði Landspítalans.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira