Eingöngu sjálfstæðismenn starfi á skrifstofu Stúdentaráðs Bjarki Ármannsson skrifar 1. nóvember 2014 14:21 Háskóli Íslands. Vísir/GVA
Í nýju opnu bréfi til Stúdentaráðs Háskóla Íslands gagnrýnir stjórn Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við háskólann, þá staðreynd að allir fjórir starfsmenn skrifstofu Stúdentaráðs hafi starfað í stjórnum Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) eða boðið sig fram til slíkra starfa. Í bréfinu er það sagt gera skrifstofuna „hættulega einsleita“ að meðlimir hennar hampi sömu stjórnmálaskoðunum. Á skrifstofu Stúdentaráðs starfa fjórir launaðir starfsmenn; formaður, varaformaður, hagsmuna- og lánasjóðsfulltrúi og framkvæmdastjóri. Stjórn Röskvu bendir á að skrifstofan á að sinna hagsmunabaráttu tæplega fjórtán þúsund manna samfélags og að hún ætti því vera eins fjölbreyttur hópur og völ er á. Þá er einnig bent á það að yfirlýst pólitísk stefna SUS einkennist af talsverðri frjálshyggju og meðal annars hefur stjórn sambandsins lagt til að leggja niður stofnanir á borð við Lánasjóð íslenskra lánsmanna og fela viðskiptabönkum hlutverk hans í hendur. Einnig hefur sambandið lagt til að taka stofnanir á borð við Raunvísindastofnun Háskólans, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands af fjárlögum ríkisins. „Ljóst er að fólk hljóti að spyrja sig hvort aðilar sem allir eru í forsvari fyrir pólitíska hreyfingu sem berst fyrir einkavæðingu helstu grunnstoða samfélagsins geti starfað af fullum heilindum fyrir hagsmuni nemenda í ríkisháskóla,“ segir í tilkynningu Röskvu. Ekki náðist í Ísak Rúnarsson, formann Stúdentaráðs, við vinnslu þessarar fréttar.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira