Vilja að ferðamenn á Íslandi auki neyslu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. desember 2014 08:00 Fjölga á heimsóknum ferðamanna til Íslands að vetri til og stefnt er að því að 90 prósent gestanna verði ánægð með Íslandsförina. Pjetur/Fréttablaðið
Ríki og borg ásamt samstarfsaðilum ætla að verja samtals 1.120 milljónum króna í markaðsátakið Ísland allt árið á næstu tveimur árum. Samkvæmt samkomulaginu ætlar ríkið að leggja fram 760 milljónir króna gegn því að Icelandair greiði 200 milljónir, Samtök ferðaþjónustunnar 80 milljónir og Reykjavíkurborg og Landsbankinn borgi 40 milljónir hvor aðili. Verkefninu verðu stýrt af Íslandsstofu undir merkjum Inspired by Iceland. Ætlunin er að fá ferðamenn til að auka neyslu sína hérlendis um allt að 4 prósent árlega og freista þess að draga úr árstíðasveiflum þannig að fleiri heimsæki landið utan sumarsins. Um 20 prósenta fjölgun verði á vetrargestum milli ára. Þá er stefnt að því að ánægja ferðamanna með Íslandsförina fari ekki undir 90 prósent að meðaltali. „Helstu markmið verkefnisins eru að jafna árstíðasveiflu í ferðaþjónustu, auka meðalneyslu ferðamanna per dag, bæta viðhorf og vitund gagnvart Íslandi sem heilsársáfangastað og festa þar með ferðaþjónustu í sessi sem heilsársatvinnugrein á Íslandi,“ segir í greinargerð sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lagði fram í borgarráði. Fram kemur að Íslandsstofa hafi látið meta virði verkefnisins árin 2012 og 2013. Þá hafi umfjöllun í erlendum miðlum verið metin á samtals 2,3 milljarða króna á sextíu mismunandi mörkuðum. „Fáum dettur til hugar að innspýting í markaðssetningu upp á um það bil 500 milljónir króna á ári til viðbótar við reglubundið kynningarstarf Íslandsstofu, Iceland Naturally, Höfuðborgarstofu, Meet in Reykjavík og fjölmargra fyrirtækja í greininni hafi ekki sitt að segja í því að þróunin hefur verið svo ör,“ segir í greinargerðinni. Auk þeirra aðila sem fyrr eru nefndir hefur verið stefnt að því að fleiri kæmu að verkefninu með 20 milljóna króna lágmarksframlag hver. Undirtektir eru ekki góðar. „Auglýst var eftir áhugasömum þátttakendum í byrjun þessa mánaðar og rann umsóknarfrestur út þann 15. desember án þess að umsóknir hefðu borist.“
Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Veður Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Fleiri fréttir Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Sjá meira