Björgunarsveitir kallaðar út á Hellisheiði Stefán Árni Pálsson skrifar 20. desember 2014 15:40 Björgunarsveitir til aðstoðar á heiðinni. vísir/vilhelm
Björgunarsveitir frá Hveragerði og Þorlákshöfn hafa verið kallaðar út vegna ófærðar á Hellisheiði en þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Þar er nú slæmt skyggni og nokkrir ökumenn hafa fest bíla sína sem hamla því að hægt sé að ryðja. Heiðin hefur verið lokað en Þrengslin eru opin. Einnig eru sveitir frá Akranesi og Kjalarnesi á leið í Hvalfjörðinn en búið er að loka veginum um hann. Fljúgandi hálka er í firðinum og hafa bílar lent utan vegar af þeim sökum. Sveitirnar munu manna lokunarpósta auk þess að aðstoða vegfarendur sem eru í vanda. Fyrr í dag voru björgunarsveitir kallaðar út vegna bíla sem ekið var út af, einn rétt sunnan Hólmavíkur, einn á Raknadalshlíð við Patreksfjörð og tveir á Holtavörðuheiði. Færð er víða slæm og beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg því til fólks að vera ekki á ferðinni nema á bifreiðum sem vel eru búnar til vetraraksturs. Einnig að virða lokanir lögreglu og Vegagerðar. Lokað er um Hellisheiði en batnandi horfur eru fyrir seinnipart dags. Opið er um Þrengslaveg. Einnig er lokað um Hvalfjörð. Búast má við vaxandi suðaustanátt S- og V-lands með snjókomu í fyrstu en síðan slyddu og rigningu eftir hádegi. Búast má við hríðarveðri á fjallvegum s.s Hellisheiði, Bröttubrekku og á Fróðárheiði, einnig á Vestfjörðum fram eftir degi en slyddu seinnipartinn. Hlýnandi veður og fer að rigna víðast hvar á láglendi síðdegis. Rignir fram á kvöld en þá snýst í hægari suðvestanátt með kólnandi veðri og ísingarhætta mikil. NA- og A-til má búast við ofankomu í dag, yfirleitt snjókomu en mögulega slyddu á láglendi. Kólnar þar í nótt og fyrramálið með snjókomu norðan til. Snjóþekja og skafrenningur er á Sandsskeiði og í Þrengslum en lokað um Hellisheiði. Hálka og óveður er á Kjalarnesi. Hálka er á Reykjanesbraut og á Suðurnesjum. Það er hálka og snjóþekja á Suðurlandi en hálkublettir og hálka á Suðvesturlandi. Flughált er undir Eyjafjöllum og að Vík. Á Vesturlandi er hálka og snjóþekja og sumstaðar skafrenningur. Hálkublettir og óveður er undir Hafnarfjalli. Ófært er á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og sumstaðar skafrenningur. Hálka og þoka er á Steingrímsfjarðarheiði. Flughálka er á Rakandsalshlíð, Barðaströnd og á köflum í Ísafjarðardjúpi. Ófært og stórhríð er á Kleifaheiði.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira