Skæð baktería greinist á Landspítalanum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. maí 2014 20:50 "MÓSA er smitandi baktería sem berst til að mynda með snertingu. Þetta eru bakteríur sem eru ónæmar fyrir hefðbundnu penisillíni sem gerir það að verkum að úrval sýklalyfja til að glíma við sýkinguna sjálfa er takmarkað.“
MÓSA baktería hefur greinst á smitsjúkdómadeild á Landspítalanum í Fossvogi. Smitið nær til sjúklinga, starfsmanna og umhverfis deildarinnar. Tveir sjúklingar hafa þegar greinst með bakteríuna og þrír starfsmenn Landspítalans. Bakterían greindist rétt fyrir helgi. Að sögn Más Kristjánssonar yfirlæknis á smitsjúkdómadeild lágu niðurstöður umhverfisræktana fyrir í morgun, og í ljós kom að vinnusvæði voru töluvert sýkt. „MÓSA er smitandi baktería sem berst til að mynda með snertingu. Þetta eru bakteríur sem eru ónæmar fyrir hefðbundnu penisillíni sem gerir það að verkum að úrval sýklalyfja til að glíma við sýkinguna sjálfa er takmarkað,“ segir Már. Hann segir jafnframt að finnist ekki viðeigandi sýklalyf við bakteríunni geti hún leitt til dauða, það sé þó sjaldgæft. „Það er þó þannig að þrátt fyrir að bakterían sé til staðar þýði það ekki að sýkingin sé það. En núna er okkar aðaláhersla að uppræta þetta.“ Gripið hefur verið til ráðstafana til að takmarka frekari útbreiðslu innan spítalans og upprætingar smitsins. Deildinni hefur verið lokað fyrir innlögnum sjúklinga og heimsóknum til sjúklinga. Þá er jafnframt unnið að því að útskrifa sjúklinga sem unnt er til að greiða fyrir innlögnum nýrra sjúklinga. Á vef Landspítalans segir að ljóst sé að tafir verði á eðlilegri starfsemi lyflækningarsviðs þar sem legurými spítalans er takmarkað. Bakterían getur lifað á húð og í nefi án þess að valda einkennum. Það er ekki fyrr en hún kemst í gegnum varnir líkamans að hún veldur sýkingum. Meðferðarmöguleikar gegn MÓSA eru takmarkaðir en bakterían er einum varasöm hjá einstaklingum með skert ónæmiskerfi. Komist hún hins vegar í sár, blóðbraut eða aðra vefi getur hún valdið misalvarlegum sýkingum, svo sem húðsýkingum, skurðsárasýkingum og blöðrubólu nýbura. Fólk sem leitar til spítalans er beðið um að sýna starfsmönnum biðlund ef tafir verða á innlögnum. Sjúklingar og ættingjar eru beðnir um að sýna skilning og veita stuðning við útskriftir.
Mest lesið Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Fleiri fréttir Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Sjá meira