Stefna á opnun íshellisins í maí Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. október 2014 10:01 Sprungan er um 5 metra og hægt er að sjá 100-200 metra inn í hana. Mynd/IcecaveIceland
Verið er að grafa helli í Langjökul og kom fram í fréttum um daginn að fundist hefði sprunga í jöklinum þar sem verið er að grafa inn í hann. Sigurður Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri IcecaveIceland, var gestur í Bítinu í morgun. Hann sagði sprunguna gera mikið fyrir verkefnið. „Í rauninni er þetta það sem við vildum í upphafi. Við vorum orðnir úrkula vonar því við vorum komnir frekar langt inn í jökulinn og höfðum ekki fundið neina sprungu. Þar að auki vissum við ekki af sprungu á þessu svæði. Ástæðan fyrir því að þetta svæði var valið er að þarna eru lágmarkshreyfingar í jöklinum og fáar sprungur.“ Sigurður sagði að sprungan væri gríðarstór en starfsmenn IcecaveIceland komu inn nánast við botn hennar. „Við erum komnir um það bil 170 metra inn í jökulinn og förum kannski 50 metra í viðbót. Við erum á svona 20 metra dýpi og nánast þarna í botninum á sprungunni, það eru einhverjir 4 metrar niður.“ Sprungan er um 5 metrar á breidd og maður sér 100-200 metra inn í hana, að sögn Sigurðar. Hann segir að IcecaveIceland ætli að lýsa sprunguna upp og gera svolítið úr henni. Hlusta má á viðtalið við Sigurð í heild sinni í spilaranum hér að ofan en stefnt er að opnun hellisins í maí á næsta ári.Mynd/IcecaveIceland
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira