Markaðssetning Securitas vekur ótta á Suðurlandi Jakob Bjarnar skrifar 30. október 2014 12:38 Hjörtur Freyr segir tilganginn ekki hafa verið þann að hræða fólk en sumum var þó brugðið þegar þeim barst bréfið. „
Það er ónotaleg tilfinning að sjá að einhver hefur rifið upp og lesið bréfin til manns. Það er ekki síður ónotaleg tilfinning að koma inn á heimili sitt og uppgötva að þar hefur einhver ókunnugur farið um, rótað í hirslum, skemmt eigur manns og skilið nánast allt eftir í rúst. Ráðist hefur verið inn í einkalíf þitt og þér gæti liðið eins og einhver hafi tekið hluta af þér. Flestum reynist mun erfiðara að kljást við þá tilfinningu en þá staðreynd að einhver hafi stolið efnislegum verðmætum.“ Svo hefst bréf sem íbúum á Suðurlandi hefur borist frá öryggisfyrirtækinu Securitas, og hefur það fallið í misjafnlega grýttan jarðveg.Viðbjóðsleg markaðssetning Svo virðist að boðskapurinn hafi komið illa við ýmsan manninn og þannig hefur mynd af bréfinu verið birt á Facebook og Securitas ekki vandaðar kveðjurnar. Sigurður Ástgeirsson birtir mynd af bréfinu á Facebooksíðu sinni og tengir við Securitas á Facebook. Hann segir: „Að banka laust kl. 10 að morgni, í stað þess að dingla bjöllu, þegar konan er heima og snögglega renna þessari viðbjóðslegu markaðssetningu inn um lúgu er fyrir neðan ykkar virðingu tel ég. Þetta er án efa eitt það sóðalegasta markaðsátak sem ég hef augum litið.“ Sigurður vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar Vísir leitaði eftir því. En, stöðufærslu hans hefur verið deilt á Facebook auk þess sem nokkrir eru til að taka í sama streng. Þannig segir til dæmis Sveinbjörn Ingi Grímsson að markaðstækni sem „elur á hræðslu til að kalla eftir auknu öryggi er svolítið eins og að ala börn upp við guðshræðslu. Brennir kertið á röngum enda. Sumarbústaða sjónvarpsauglýsingin var rétt nálgunin, en þetta bréf fengi mig frekar til að hringja í Öryggismiðstöðina.“Ekki ætlunin að hræða fólkHjörtur Freyr Vigfússon er markaðsstjóri hjá Securitas sem hann segir til að vekja sérstaka athygli á því að Securitas var að opna skrifstofu á Selfossi og þannig tvöfalda þjónustu sína á svæðinu. Hjörtur Freyr segir að ávallt séu viðbrögð við auglýsingum og markaðssetningu og þau geti reynst blendin. Oftast góð en þetta sé einstaklingsbundið. Hjörtur Freyr hefur nú verið hjá Securitas í þrjú ár og þannig hefur það alltaf verið. Við því sé að búast vegna eðlis starfseminnar. „Bréfið endar á því að við vekjum sérstaklega athygli á því að bréfið var opnað af okkur sjálfum til að vekja athygli á inntaki þess.“ Hjörtur Freyr segir það skýra stefnu hjá fyrirtækinu að keyra ekki á hræðsluáróðri í markaðsstarfi. „En, menn upplifa sitt umhverfi á mismunandi máta, og ef þetta hefur hrætt einhvern þá getum við ekki annað en beðist afsökunar á því. Ég ber ábyrgð á þessum markpósti, og ef það er eitthvað sem við gerum í okkar auglýsingum og markaðsmálum sem stuðar fólk, þá biðjumst við innilega afsökunar á því. Það er ekki tilgangurinn með þessum auglýsingum að hræða fólk heldur vekja til umhugsunar. Tilgangurinn var ekki að láta umræddum manni líða illa eða hans fjölskyldu.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira