Aðeins í fasistaríkjum sem lögregla hefur sjálfdæmi um vopnaburð Heimir Már Pétursson skrifar 30. október 2014 19:30
Lögmaður Snarrótarinnar segir það aðeins gerast í fasistaríkjum að lögregla hafi sjálfdæmi um vopnaburð sinn. Alþingi verði að koma að slíkum ákvörðunum. Nauðsynlegt sé að koma upp sjálfstæðu eftirliti með lögreglunni sem einnig hafi verið sökuð um að ganga langt í kröfum um húsleit og símhleranir. Upplýsingar Landhelgisgæslu og lögreglu um vopnakaup þeirra eða gjafir hafa vægast sagt verið misvísandi og villandi. Ráðherrar hafa nánast hummað þetta mál fram af sér og sagt það alfarið vera í höndum yfirmanna þessara stofnana. „Ég tel það vafalaust að lögregla á Íslandi geti ekki haft sjálfdæmi um þetta. Það sé í rauninni bara í fasistaríki sem lögregla geti ákveðið að vopnast og hvert umfang þess vopnaburðar eigi að vera. Það munu hafa verið settar reglur sem eru leynilegar sem ég þarf að skoða sérstaklega hvort standist stjórnarskrá. En ég tel alveg augljóst samkvæmt okkar stjórnskipun að Alþingi þarf að setja slíkar reglur,“ segir Gísli Tryggvason lögmaður. Gísli hefur látið sig réttindi almennings varða, hann var talsmaður neytenda um árabil og er m.a. lögmaður Snarrótarinnar, samtaka um borgaraleg réttindi. Yfirmennn lögreglu og Landhelgisgæslu hafa sagt að ekki sé um aukin vopnabúnað að ræða heldur eðlilega endurnýjun vopna. Gísli segir erfitt að meta þetta en hann gefi sér af fréttum að um breytingu á vopnaburði sé að ræða. „En mér finnst aðalatriðið; hver á að ákveða hvort, hvar, hvernig og hvaða vopn lögreglan eigi að bera. Og ég tel augljóst að það geti ekki verið eins og ríkislögreglustjóri sagði í sjónvarpsviðtali, að lögreglustjórar meti það sjálfir,“ segir Gísli. Það samrýmist hvorki íslenskri stjórnskipan né sögu. Hér hafi verið friðsamlegt samfélag öldum saman. „Hér eru aðeins eitt til tvö morð á ári að meðaltali síðustu mörg ár og það gerðist jú fyrst í fyrra að lögregla drap mann með vopni,“ segir Gísli. Það mál og önnur dæmi sýni að það sé full þörf á sjálfstæðu eftirliti með lögreglunni og skýrari lagareglum um hana. „Ég held að það þurfi ytra þingeftirlit með lögreglu, sem líka hefur verið sökuð um að ganga mjög langt í að krefjast húsleitar og símhlerana án þess að dómstólaeftirlitið sé nógu virkt,“ segir Gísli Tryggvason.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira