Mikilvægt að taka viðvaranir alvarlega Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 30. október 2014 19:03 Vísir/Egill Aðalsteinsson
Viðbragðstjórn Sjúkrahússins á Akureyri var kölluð saman í morgun vegna mikillar gosmengunar í bænum. Ákveðið var að slökkva á loftræstikerfi spítalans til tryggja öryggi sjúklinga. Íslendingar hafa ekki upplifað aðra eins mengun í meira en tvær aldir og segir deildarstjóri Almannavarna mikilvægt að taka viðvaranir alvarlega. Í Eyjafirði, Skagafirði og Snæfellsnesi var íbúum ráðlagt að halda sig innandyra í dag vegna gosmengunar, loka gluggum og hækka í ofnum. Blá mengunarmóða lá yfir svæðunum. Sjómenn við Eyjafjörð héldu í land vegna mikillar menguna og fáir voru á ferli. Mest mældist mengunin á Akureyri um 6000 míkrógrömm á rúmmetra. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri var viðbragðsstjórn kölluð saman þegar mengunin var komin yfir 2000 í morgun og tekin var ákvörðun um að slökkva á loftræstikerfum spítalans vegna hættu sem gæti skapast fyrir sjúklinga. Hildigunnur Svavarsdóttir, formaður viðbragðsteymis Sjúkrahússins á Akureyri , segir sjúklingana viðkæma og því hafi verið mikilvægt að tryggja að gosmengunin næði ekki til þeirra inni á spítalanum. Síðdegis var loftræstikerfið sett í gang á ný þegar dregið hafði úr mengun. Almannavarnir sendu um þrjátíu þúsund manns á svæðunum smáskilaboð í dag þar sem varað var við mikilli mengun. Þá virðist sem að fjölmargir hafi fundið vel fyrir henni. Víðir Reynisson, deildarstjóri Almannavarnadeilar Ríkislögreglustjóra, segir leita þurfi allt aftur til gossins í Lakagígum til að finna dæmi um álíka mengun hér á landi. Þá sé sé mikilvægt að fólk taki viðvaranir alvarlega.
Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira