Sakar Isavia um að hygla Icelandair Jón Júlíus Karlsson skrifar 18. desember 2013 20:19
Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air, sakar rekstraraðila Keflavíkurflugvallar um að draga taum Icelandair í úthlutun á afgreiðslutímum. WOW gæti þurft að draga sig úr samkeppninni í Norður-Ameríkuflugi fái flugfélagið ekki afgreiðslutíma til jafns við Icelandair. Forsaga málsins er sú að WOW Air kærði Isavia og Icelandair til Samkeppniseftirlitsins. WOW Air þótti á sig hallað þegar úthlutað var afgreiðslutímum snemma morguns og síðdegis á Keflavíkurflugvelli enda ætlaði flugfélagið í samkeppni við Icelandair í Norður-Ameríkuflugi. Fjöldi flugfarþega millilendir á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til og frá Norður-Ameríku. Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air, segir flugfélagið verða að fá tíma til að hægt sé að tengja flug milli Norður-Ameríku og Evrópu. „Icelandair er með einokunarstöðu frá september og fram í maí á öllu flugi til og frá Norður-Ameríku til Íslands. Isavia hefur ekki viljað verða að ósk okkar og Samkeppniseftirlitsins í þessu máli sem er mjög sérkennileg staða því Isavia er ríkisfyrirtæki,“ segir Skúli. Í úrskurði samkeppniseftirlitsins frá því 1. nóvember kemur skýrt fram að Isavia beri að úthluta afgreiðslutímum til WOW Air til jafns við Icelandair. Isavia áfrýjaði málinu og er ekki von á niðurstöðu í málinu fyrr en í lok janúar. „Það er alveg ljóst að ef þetta mál tefst mikið lengur munum við ekki geta hafið flug til Norður-Ameríku eins og við höfum tilkynnt og okkar áætlanir gerðu ráð fyrir. Það yrði auðvitað mjög bagalegt fyrir allan almenning þar sem við munum bjóða upp á mun lægri fargjöld til Norður-Ameríku en hingað til hefur tíðkast,“ segir Skúli Mogensen. Fulltrúar Isavia neita því að þeir gangi erinda Icelandair. Í áfrýjun Isavia kemur fram að sjálfstæður samræmingastjóri fari með úthlutun afgreiðslutíma og að hann sé með öllu óháður Isavia. Félagið hafi ekki valdheimildir til að afturkalla úthlutun afgreiðslutíma. Draga mun til tíðinda í málinu í byrjun næsta árs.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira