FM Belfast er mikil stuðsveit og myndar jafnan mikla stemmningu á tónleikum sínum. Egill segist sjálfur gegn þýðingamiklu hlutverki í sveitinni. Hann syngur bakraddir og rappar auk þess að hann dansar af lífi og sál. Egill stal algjörlega senunni með dansi sínum á tónleikunum á laugardagskvöld og dansaði sig inn í hug og hjörtu tónleikagesta.
„Það var mikil stemmning á laugardag. Það er mismunandi upplifun af hverjum tónleikum fyrir sig en þessir tónleikar voru mjög skemmtilegir,“ segir Egill.

Egill nær ekki öllum tónleikum FM Belfast vegna vinnu sinnar. Hann er búsettur í Brussel og starfar hjá EFTA, fríverslunarsamtökum Evrópu. Það kemur kannski mörgum á óvart að þessi hressi liðsmaður FM Belfast starfi sem embættismaður hjá alþjóðlegum fríverslunarsamtökum. Egill segir þó að starfið passi vel með spilamennsku í FM Belfast.
„Það er frábært að geta stigið upp frá skrifborðinu og upp á svið. Ég fæ mikla jákvæða orku úr starfi mínu sem ég get nýtt það með FM Belfast,“ segir Egill. Danshæfileikar hans vöktu mikla gleði á tónleikunum. Hann er þó ekkert lærður í dansi.
Egill mætti sérstaklega frá Brussel til Íslands til að taka þátt í tónleikum FM Belfast á Iceland Airwaves. Þegar Vísir náði tali af kappanum þá var hann mættur aftur til Brussel.
„Ég næ meirihlutanum af tónleikunum þó ég sé búsettur í Brussel. Það er stutt að fara ef sveitin er að spila í Evrópu,“ segir Egill. Mikið er framundan hjá sveitinni en FM Belfast mun gefa frá sér nýja plötu innan skamms.
„Það er ný plata væntanleg og svo eru tónleikar framundan í Tokyo í Japan. Ég ætla að fara með til Japan og við erum öll mjög spennt fyrir því að spila í Japan,“ segir Egill að lokum. Í myndbandinu hér að ofan má sjá nokkur dansspor frá kappanum á tónleikunum á laugardag.