Lögregluna vantar 3,5 milljarða á ári 23. mars 2013 07:00 Ögmundur Jónasson
Setja verður fjórtán milljarða aukalega til löggæslumála til ársins 2017, eða 3,5 milljarða á ári, samkvæmt skýrslu innanríkisráðherra sem rædd var á þingi í gær. Þörfin er mikil og fjölga verður lögreglumönnum um 236 á sama tíma og verja rúmlega milljarði til að bæta búnað lögreglunnar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti skýrsluna í gær, en hún fjallar um störf nefndar um grundvallarskilgreiningar löggæslu á Íslandi og gerð löggæsluáætlunar. Vinnan byggir á þingsályktunartillögu Gunnars Braga Sveinssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, og skýrslu sem ráðherra kynnti í fyrra um stöðu lögreglunnar. Ögmundur sagði í umræðunum að fram hefði komið að niðurskurður til lögreglunnar á síðustu árum næmi 2,8 milljörðum að raungildi. Það hefði kallað á mannfækkun og hert hefði verið að löggæsluembættum á ýmsa lund. Hann fagnaði því að pólitísk samstaða væri að nást um að efla hag löggæslunnar. „Ég fagna því að menn myndi um það samstöðu að á komandi árum verjum við umtalsverðum fjármunum til löggæslunnar, til að reisa hana við að nýju þannig að hún standi eigi verr að vígi en fyrir hrun, og gott betur.“ Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir að sambandið fullyrði að skýrslan marki eitthvert mesta framfaraspor sem stigið hafi verið í skipulagningu löggæslumála í ára- ef ekki áratugaraðir. „Þetta er í fyrsta sinn sem nást saman við sama borð fulltrúar Alþingis, framkvæmdarvaldið, það er ráðuneytið, og embættismannakerfið, það er að segja lögreglan, til að fjalla um málefni lögreglunnar með þeim hætti sem birtist í skýrslunni. Það eru í raun allir sammála um niðurstöðurnar, hverjar svo sem efndirnar verða síðan.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Sjá meira