Heimamenn vilja útiloka síld frá Kolgrafafirði Svavar Hávarðsson skrifar 18. október 2013 20:45 Þykkur síldarbingur þakti fjörur í firðinum. Mynd/Vilhelm
Bæjarráð Grundarfjarðar skorar á Sigurð Inga Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, að leyfa lokun Kolgrafafjarðar án tafar vegna hættu á frekari síldardauða í firðinum. Ef þetta er tæknilega mögulegt vill bæjarráð að kannað verði hversu langan tíma Vegagerðin þarf til framkvæmda sem nægja til að halda síld utan brúar. Eins og kunnugt er drápust um 50.000 tonn af síld í firðinum í fyrravetur og var mengun vegna þessa gífurleg á svæðinu. Heimamenn lýsa yfir áhyggjum yfir hægagangi stjórnvalda varðandi viðbrögð við mögulegum síldardauða á meðan allt bendi til þess að ekki verði minna um síld á svæðinu en verið hefur undanfarna vetur. Ef tæknilega mögulegt vilja heimamenn loka leið síldarinnar undir brúna.Mynd/VilhelmÁ vegum umhverfisráðuneytis er unnið að gerð viðbragðsáætlunar um aðgerðir ef síld drepst í firðinum. Tilraunir til að fæla síld frá því að ganga inn í fjörðinn, t.d. með ljósum eða hljóðum hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Eina leiðin til að tryggja að síld gangi ekki inn í Kolgrafafjörð er því að loka firðinum, að mati bæjarráðs. Rannsóknum fara nú fram til að varpa ljósi á áhrif þverunar fjarðarins á síldardauðann. Niðurstöður þeirra munu að líkindum ekki liggja fyrir fyrr en haustið 2014.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Fleiri fréttir Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Sjá meira