Segir brotið á mannréttindum heyrnalausra Hrund Þórsdóttir skrifar 15. september 2013 13:30
Prestur heyrnarlausra segir brotið á mannréttindum þeirra, fái þeir ekki túlkaþjónustu í daglegu lífi. Peningar sem ætlaðir voru til þjónustunnar á árinu eru búnir og heyrnarlausir hafa miklar áhyggjur af stöðunni. Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi eru fjármunir sem ætlaðir voru til túlkaþjónustu í daglegu lífi á þessu ári búnir og því útlit fyrir að heyrnarlausir fái ekki þessa nauðsynlegu þjónustu fyrr en á nýju ári. Hægt er að horfa á fréttina í spilaranum hér fyrir ofan. Hún hefst á mínútu 07:30. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, prestur heyrnarlausra, segir þetta alvarlegt mál. „Það er verið að brjóta mannréttindi þessa fólks. Það horfir svoleiðis við mér að þarna er verið að mismuna fólki sem notar íslenskt táknmál sem sitt móðurmál sem er lögum samkvæmt þeirra móðurmál og nú er klárlega verið að brjóta á þeim, samkvæmt lögum.“ Brynja segir skort á túlkaþjónustu þýða mikla einangrun fyrir heyrnarlausa, enda séu túlkarnir lykill þeirra að samfélaginu. Skjólstæðingar Brynju hafa leitað til hennar vegna málsins og lýst áhyggjum sínum af stöðunni. „Um leið og er lokað fyrir þessa túlkaþjónustu vegna þess að það er ekki til fjármagn þá auðvitað fer þetta að hafa áhrif. Þetta fólk hefur skráð sig á námskeið sem það fær ekki núna túlk á og hefur jafnvel átt að vera á námskeiðum og annað í vinnu og fær ekki túlk þangað,“ segir Brynja. Brynja segir mikilvægt að standa vörð um réttindi þessa hóps.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira