Nýr þjálfari Barcelona Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. júlí 2013 19:50 Martino. Nordicphotos/getty
Gerardo Martino verður nýr þjálfari knattspyrnustórveldisins Barcelona. Guardian greinir frá þessu á vefsíðu sinni. Barcelona mun semja við Argentínumanninn til þriggja ára en spænski risinn tilkynnti á föstudag að Tito Vilanova þyrfti að láta af starfi vegna veikinda. Barcelona ræddi við Martino fyrir helgi eða um leið og ljóst varð að Vilanova myndi hætta. Samkomulag náðist við hann á símafundi í morgun. Reiknað er með að Martino verði kynntur til leiks á næstu dögum. Martino er fimmtugur og er leikjahæsti leikmaður í sögu Newell's Old Boys í Argentínu. Hann þjálfaði landslið Paragvæ í fimm ár og stýrði liði Newell's Old Boys í undanúrslitin í Suður-Ameríkubikarnum á síðustu leiktíð. Martino lék á sínum tíma undir stjórn landa síns Marcelo Bielsa sem gert hefur góða hluti með lið Athletic Bilbao undanfarin tvö ár auk þess að stýra bæði landsliðum Chile og Argentínu. Hann er sagður undir miklum áhrifum Bielsa þegar kemur að þjálfarafræðum. Ekki er talið að Martino verði þó kominn til Spánar þegar heimamenn mæta Bayern München í æfingaleik á miðvikudag. Þjálfari Bæjara er Pep Guardiola, fyrrum leikmaður og þjálfari Barcelona.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Tito Vilanova er hættur með Barcelona Tito Vilanova er hættur sem knattspyrnustjóri Barcelona vegna erfiðra veikinda sem hafa hrjáð Spánverjann. 19. júlí 2013 19:45 Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Fleiri fréttir Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Sjá meira
Tito Vilanova er hættur með Barcelona Tito Vilanova er hættur sem knattspyrnustjóri Barcelona vegna erfiðra veikinda sem hafa hrjáð Spánverjann. 19. júlí 2013 19:45