Prófessorar funda vegna mála Jóns Baldvins og HÍ Jakob Bjarnar skrifar 4. september 2013 13:53 Rúnar Vilhjálmsson fundar nú, ásamt öðrum prófessorum, m.a. um mál Jóns Baldvins en því tengjast mikilvæg atriði er varða stöðu Háskólans.
Prófessorar funda nú, meðal annars vegna mála Jóns Baldvins Hannibalssonar og Háskólans. Formaður þeirra, Rúnar Vilhjálmsson, segir að málið varði mikilvæg atriði og siðferðileg álitamál sem Háskólinn stendur frammi fyrir og hlýtur að taka afstöðu til. Mál Jóns Baldvins Hannibalssonar, eða sú ákvörðun Háskóla Íslands að draga til baka boð um að hann kæmi að kennslu sem gestakennari, er mikið hitamál sem flestir fjölmiðlar landsins hafa fjallað um. Sem dæmi má nefna að í leiðara stærsta dagblaðs landsins, Fréttablaðsins, segir Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri þau svör sem komið hafa frá Háskóla Íslands ekki boðleg. Ólafur vísar þar til orða Daða Más Kristóferssonar, forseta Félagsvísindasviðs HÍ, þess efnis að það sé um friðinn að tefla. „Þau jafngilda því að segja að sé gagnrýni á ákvarðanir Háskólans nógu hávær, bakki skólinn út úr þeim burtséð frá efni málsins,“ skrifar Ólafur. Fundur félags prófessora við ríkisháskólann er nú yfirstandandi. Til fundarins var boðað áður en mál Jóns Baldvins komust í hámæli, en þau munu engu að síður verða til umfjöllunar undir dagskrárliðnum önnur mál. Rúnar Vilhjálmsson er formaður félagsins og hann segir að á fundinum verði lög fram gögn sem framkvæmdastjóri félagsins hefur tekið saman og lagt mat á þau. En félagið er bæði kjarafélag og fagfagfélag sem lætur sig málefni allra háskóla í landinu varða. Ekki er hægt að segja um það á þessu stigi hvort félagið sendi frá sér ályktun eftir fundinn. Rúnar segir tekist á um tvö sjónarmið: Hvort gera eigi einhverjar siðferðiskröfur til kennara á öllum skólastigum og jafnvel á háskólastiginu líka og hverjar þær eigi þá að vera; hvar eigi að draga mörk, hverjir eigi að setja þær reglur og hvernig eigi að fylgja þeim eftir? Og hitt sjónarmiðið segir að hér verði að gera greinarmun á óskildum málum. „Aðalatriði er þegar ráðnir eru kennarar að þeir hafi hæfni, þekkingu, getu til þess að fræða og þjálfa nemendur. Og að við verðum að geta umgengist hvert annað þó að við séum með einhverjar ávirðingar á bakinu vegna annarra hluta, á öðrum vettvangi og á öðrum tíma. Þarna eru þessi sjónarmið að glíma. Sumir leggja mikla áherslu á siðferðisþáttinn og fyrirmyndina sem kennarinn er. Jafnvel friðinn sem það skapi í háskólasamfélaginu, ef hann er ekki siðferðilega óflekkaður – hvað svo sem það þýðir? Svo eru aðrir sem benda þá á það á móti að ef við ætlum að siðbæta háskólann með þessum hætti verði kannski ekki margir eftir í mörgum deildum til að kenna, stunda rannsóknir. Hver á að meta og hvar drögum við mörkin?“ Spurður hvort ekki sé ljóst að akademían sé í klemmu vegna málsns segir Rúnar að þau sjónarmið hafi komið fram að þetta sé að einhverju leyti stormur í vatnsglasi, hvað það varðar að ekki sé um að ræða skriflegan samning sem var rift, heldur var þarna gert óformlegt samkomulag sem ekki gekk eftir.„En þetta tengist mjög mikilvægum málum sem lúta að því á hvaða forsendum við vegum og metum hvert annað í háskólasamfélaginu og hvernig við veljum fólk til starfa, almennt, hvort sem við erum að fastráða eða lausráða fólk. Þar koma þá inn í spurningar eins og um siðferðileg málefni og jafnvel bæði brotlega hegðun og ósiðsama hegðun og hvort hún eigi þá að skipta mál? Jafnvel tengist þetta umræðunni um það hvenær menn ljúka störfum eða er sagt upp, komi slíkt upp. Þannig að þarna eru stór mál á bak við.“
Mest lesið Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Fleiri fréttir Þúsund myndavélar fylgjast með því sem fram fer á flugvellinum Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Sjá meira