Sport

Útlitið dökkt hjá Ragnheiði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnheiður Ragnarsdóttir.
Ragnheiður Ragnarsdóttir. Nordic Photos / Getty Images
Þó svo að ekki sé búið að loka enn á skráningar nýrra sundmanna á Ólympíuleikana í Lundúnum virðist sem svo að þátttakendalisti í 100 m skriðsundi kvenna sé fullskipaður.

Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr KR, var að stefna á að komast inn í þessari grein en þurfti að bíða eftir boði FINA, Alþjóðasundsambandsins, eins og svo margir aðrir íslenskir sundmenn.

Í vikunni hefur Sundsambandi Íslands borist boð fyrir þó nokkra íslenska sundmenn og það í fleiri en einni grein.

Ragnheiður á best 56,10 sekúndur í greininni og er samkvæmt útreikningum Harðar Oddfríðarsonar, formanni SSÍ, með besta tímann af þeim keppendum sem eiga möguleika á að komast inn en hafa ekki fengið boð.

Til þess að komast inn á leikana þarf að ná Ólympíulágmarki, svokölluðum OQT-tíma, en þeim sem ná Ólympíuviðmiði (OST-tíma) þurfa að bíða eftir boði FINA. Níu sundmenn hafa fengið boð í hverri grein og hafa allir níu sem fengu boð í 100 m skriðsundi kvenna nú staðfest komu sína á leikana.

Hörður segir þó að ekki sé öll nótt úti enn. Enn eigi eftir að fara betur yfir þátttökulistana og möguleiki sé á því að pláss opnist fyrir Ragnheiði áður en lokað verður fyrir skráningar á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×