Sport

Jakob Jóhann keppir í tveimur greinum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Enn bætast við keppnisgreinar hjá íslenska sundfólkinu sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Jakob Jóhann Sveinsson mun nú keppa í báðum sínum sterkustu greinum.

Fyrr í vikunni fékk Jakob Jóhann boð til að synda í 100 m bringusundi en í dag barst honum boð um að keppa einnig í 200 m bringusundi.

Alls fara sjö íslenskir sundmenn á Ólympíuleikana í Lundúnum sem hefjast þann 27. júlí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×