Umsvifamestu aðgerðir lögreglu gegn mótorhjólagengjum 4. október 2012 07:11
Á annan tug manna voru handteknir á suðvesturlandi í gærkvöldi, í umsvifamestu aðgerðum lögreglu gegn mótorhjólagengjum til þessa. Yfirheyrslur stóðu langt fram á nótt og verður fram haldið með morgninum, en að svo stöddu liggur ekki fyrir hvort lögregla ætlar að krefjast gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir einhverjum. Á áttunda tug löggæslumanna frá embættum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Ríkislögreglustjóra, lögreglunni í Árnessýslu og á Suðurnesjum, auk manna og fíkniefnahundar frá Tollgæslunni tóku þátt í aðgerðinni, sem beindist gegn vélhjólagenginu Outlaws. Gerð var húsleit í húsnæði samtakanna í Hafnarfirði og á ýmsum stöðum í Reykjavík, á Suðurnesjum og í Árnessýslu, þar sem fólk var janframt handtekið. Lögregla lagði þar hald á þýfi, margskonar eggvopn og fíkniefni, en magn fíkniefnanna er ekki gefið upp. Vegna rannsóknarhagsmuna segir lögregla ekki unnt að greina frá tilefni aðgerðarinnar á þessu stigi málsins. Aðeins tvær vikur eru síðan að sjö meðlimir Outlaws voru handteknir í aðgerð lögreglunnar, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra voru handteknir aftur í nótt.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira