Hitinn í LA hamlaði upptökum 22. ágúst 2012 20:30 "
Það var rosalega mikill hiti og þá þarf förðunin að vera mikil svo hún leki ekki af með svitanum. Ég sá að mestu um förðunina sjálf en fékk aðstoð frá vinkonu minni fyrir eina senuna. Við reyndum að skjóta flest seinni part dags þegar sólin er ekki jafn sterk og hitinn ekki eins mikill," segir söngkonan Svala Björgvinsdóttir. Hljómsveitin Steed Lord sendi frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið Hear Me Now í vikunni. Svala skipar Steed Lord ásamt bræðrunum Einari og Edda Egilssonum og sjá þau sjálf um allt sem viðkemur framleiðslu og sköpun tónlistarmyndbandanna. Mikill hiti hefur verið í Los Angeles undanfarnar vikur og segir Svala að hitinn hafi gert þeim erfitt fyrir við upptökur á myndbandinu. Fatnaðurinn sem Svala klæðist í myndbandinu hefur einnig vakið nokkra athygli enda eru búningarnir litríkir og heldur sérstakir. Allar flíkurnar sem Svala klæðist í myndböndum sveitarinnar eru hennar eigin en hún segist einnig fá hluti að láni frá vinkonum sínum sé eitthvað sem vanti upp á. "Ég hef safnað notuðum fötum og búningum í örugglega fimmtán ár. Ég versla helst á netinu og svo fer ég á alla flóamarkaði sem ég kemst á þegar ég ferðast um heiminn. Síðan hef ég verið svo heppin að fá mikið af höttum og fylgihlutum gefins frá hinum og þessum," segir hún. - sm
Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sjá meira