Fylgihlutir sem tekið er eftir 23. mars 2012 15:00 Bryndís Björg Einarsdóttir og Ólína Jóhanna Gísladóttir í Kastaníu. „
Við opnuðum á Höfðatorgi fyrir rúmu ári en okkur fannst vanta svona verslun í flóruna. Við leggjum mikla áherslu á að velja litríkar og áberandi vörur en höfum auk þess gæði og fallega hönnun að leiðarljósi," segir Bryndís Björg Einarsdóttir sem rekur verslunina Kastaníu ásamt Ólínu Jóhönnu Gísladóttur. Í versluninni eru merki frá Skandinavíu, Bandaríkjunum og Þýskalandi í bland við íslenska hönnun. „Við veljum það fallegasta frá hverju merki en tökum auk þess við ábendingum frá viðskiptavinum okkar," segir Bryndís. Fylgihlutirnir í Kastaníu eru að mestu fyrir konur en þó er að finna gott úrval höfuðfata, úra og sólgleraugna fyrir karla. „Við erum með úr og sólgleraugu frá TRIWA sem eru fyrir bæði kyn. Úrvalið er fjölbreytt og tökum við inn nýjar línur tvisvar til þrisvar á ári. Þá erum við með silkiklúta úr hundrað prósent silki frá Plomo O Plata en líka silkiblöndur af ýmsu tagi. Eins erum við með mikið af töskum og buddum í alls kyns litum og má meðal annars nefna handsaumaðar leðurtöskur eftir breska hönnuðinn Monicu Boxley." Bryndís segir einnig talsvert um vörur eftir íslenska hönnuði í versluninni og nefnir skartgripi Hildar Hafstein, Made By3, Gling Gló og hálsmen frá Spunadís. Í versluninni er einnig að finna boli og barna- og dömuskó frá Ed Hardy og Christian Audigier. Að sögn Bryndísar leggja þær Ólína áherslu á að hafa úrvalið í versluninni árstíðabundið. „Við erum að færa okkur yfir í sumarbúninginn núna en á veturna tökum við inn meira af fötum og yfirhöfnum. Við erum þó alltaf með silkiboli frá Margit Brandt og S,NOB. Í kringum jólin erum við svo með umtalsvert af gjafavöru." Bryndís segir þær leggja áherslu á að velja fáa hluti af hverri tegund þannig að fólk geti gengið að því vísu að það sé að kaupa sér einstaka fylgihluti. Smellið á myndina hér fyrir ofan til að fletta myndasafni af vörum í versluninni.Kastanía er opin mánudaga til föstudaga frá 11 - 18 og laugardaga frá 12 - 16. Síminn er 577-5570.
Mest lesið Lauk krefjandi háskólanámi og barðist við lífshættuleg veikindi á sama tíma Lífið Skotin flakka milli Enoks og Birgittu: „Settu franskarnar í pokann“ Lífið Reisa styttu af Birni í Kópavogi Lífið Drake kom fram á tónleikum í 66°Norður Lífið Ósérhlífinn starfsmaður bjargaði ómvölum frá endurvinnslu Lífið Krakkatían: Mona Lisa, VÆB og Þjóðhátíð Lífið Segja Freddie Mercury eiga laundóttur Lífið Sinnir sjúklingum í sama herbergi og hún fékk greiningu Lífið Gellur fjölmenntu í sumarpartý Ingu Lindar Lífið Frumsýning á Cannes og gullhamrar Bill Murray: „Nú er ég búin að toppa mig algjörlega“ Lífið Fleiri fréttir Drake kom fram á tónleikum í 66°Norður Reisa styttu af Birni í Kópavogi Lauk krefjandi háskólanámi og barðist við lífshættuleg veikindi á sama tíma Krakkatían: Mona Lisa, VÆB og Þjóðhátíð Segja Freddie Mercury eiga laundóttur Skotin flakka milli Enoks og Birgittu: „Settu franskarnar í pokann“ Sinnir sjúklingum í sama herbergi og hún fékk greiningu Fréttatía vikunnar: Evrópudeildin, kappakstur og sólmyrkvi Billy Joel greindist með heilasjúkdóm Gimbur borin með svart hjarta á bakinu Eva Laufey og Haraldur selja húsið á Skaganum Gellur fjölmenntu í sumarpartý Ingu Lindar Nadía og Arnar selja fallegt hús í Hafnarfirði „Hæ allir saman, kjósið New Day Will Rise“ „Erum við að reyna fá fólk til þess að vera svikara“ Á spítala eftir samfarir við 583 menn Hjálmar með upplyftandi morgunkveðju Níu ára toppaði Hvannadalshnjúk og renndi sér niður Ósérhlífinn starfsmaður bjargaði ómvölum frá endurvinnslu Kim „loksins“ útskrifuð Frumsýning á Cannes og gullhamrar Bill Murray: „Nú er ég búin að toppa mig algjörlega“ Sigurvegarinn vill banna Ísrael Tilkynna um 29 ný atriði á Iceland Airwaves Rúrik fellur í skuggann á kynþokkafullum Jóni Var hent í ljónagryfjuna þegar hann fór inn á Vog Color Run flytur úr Laugardal og í Kópavog Dunda dömurnar fögnuðu í bongó blíðu Baltasar Kormákur og Ólafur Jóhann saman í Þjóðleikhúsinu Dulúðug hvít andlit: „Nú horfi ég á þetta allt öðruvísi“ Keyptu glæsihús Atlanta-hjónanna á undirverði Sjá meira