Í anda bistróstaða frá New York 27. febrúar 2012 12:00 Stefán Melsteð og Sigurgísli Bjarnason á nýja veitingastaðnum Snaps sem opnar á Óðinstorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „
Þetta verður mjög skemmtilegur staður,“ segir Sigurgísli Bjarnason. Boðið verður upp á snafsa, smurbrauð og klassískan bistrómat á nýjum veitingastað, Snaps, sem opnar á Óðinstorgi á næstunni þar sem áður var Brauðbær. „Staðurinn er búinn að taka rosalegum breytingum,“ segir Sigurgísli, sem rekur einnig veitingastaðinn Nings. Meðeigandi hans að Snaps er kokkurinn Stefán Melsteð sem starfaði áður á Hotel d"Anglaterre í Kaupmannahöfn. Lagt verður upp með að halda í gömlu hefðirnar bæði hvað matseðlinn og útlitið varðar, í anda staða á borð við Pastis og Balthasar í New York og Café Victor í Kaupmannahöfn. Fenginn var leikmyndahönnuðinn Hálfdán Pedersen til að aðstoða við hönnunina. Hann hefur áður komið að hönnun Kex Hostel og verslunarinnar Geysi. „Hann setti rauða þráðinn í þessu og hefur staðið sig mjög vel.“ Að sögn Sigurgísla verður Snaps ekki dýr veitingastaður. Áhersla verður lögð á þægilega stemningu með lifandi tónlist og nýlega var fest kaup á gömlu píanói frá Sauðárkróki. Gömul ljós frá Kaffi Óperu í Lækjargötu og marmaraborð frá gamla Hressingarskálanum prýða staðinn einnig. Hótel Óðinsvé er í sama húsi og Snaps og verður staðurinn í samstarfi við hótelið. Gamli inngangurinn sem var framan á húsinu verður notaður á nýjan leik. „Við lofum góðri stemningu en umfram allt góðum mat,“ segir Sigurgísli. -fb
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira