Guðrún Eva og Páll ánægð og undrandi 26. janúar 2012 14:45 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson á Bessastöðum í gær. Mynd/HAG
Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Verðlaun í flokki fagurbókmennta komu í hlut Guðrúnar Evu Mínervudóttur fyrir bókina Allt með kossi vekur en í flokki fræðirita hlaut Páll Björnsson verðlaunin fyrir bók sína Jón forseti allur? „Ég er ótrúlega glöð, það er svo gott fyrir þessa bók að fá verðlaunin, þau munu setja kastljós á verkið og veita því aukalíftíma sem skiptir mig miklu máli, mig langar mjög mikið til þess að það berist sem víðast og verði lesið af sem flestum," sagði Guðrún Eva Mínervudóttir þegar ljóst var að hún hafði hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Allt með kossi vekur. Verðlaunin voru afhent í 23. sinn í gær. Forseti Íslands afhenti þau við hátíðlega athöfn sem fram fór á Bessastöðum. Guðrún Eva segir einstaklega ánægjulegt að hafa fengið verðlaunin í ár, enda hafi sérlega margar frambærilegar bækur komið út. „Þetta var þvílíkt bókaflóð góðra bóka og því sérlega ánægjulegt fyrir mig að hafa fengið verðlaunin. Ég var mjög ánægð með þessa bók og leyfði mér í fyrsta sinn að vona að ég fengi verðlaunin, veit svo sem ekki af hverju vonin læddist inn í hjarta mitt en hún gerði það samt," segir Guðrún Eva sem hefur áður verið tilnefnd tvisvar sinnum til verðlaunanna. Spurð hvort hún sé byrjuð á nýju verki segir Guðrún Eva svo ekki vera. „Yfirleitt tekur það mig langan tíma að komast í gang því ég legg svo hart að mér á lokaspretti bókanna. Síðasta ár var svo einstaklega annasamt, ég lauk síðasta yfirlestri bókarinnar tveimur dögum áður en ég hélt utan á bókamessuna í Frankfurt, Skaparinn kom út á þýsku og því þurfti að fylgja eftir." Að lokinni törninni kom frumburður Guðrúnar Evu í heiminn 16. nóvember. „Þá var ég mátulega búin að gera mitt til að kynna bókina og hef einbeitt mér að því að sinna henni. Yfirleitt skrifa ég niður hugmyndir í vasabók áður en ég hef vinnu við næsta verk, en það hefur farið lítið fyrir því núna. En það er ágætis hvíld fyrir hausinn að sinna dótturinni og gengur bara mjög vel." Í flokki fræðirita komu bókmenntaverðlaunin í hlut Páls Björnssonar sem hlaut þau fyrir bók sína Jón forseti allur? Páll segir verðlaunin hafa komið þægilega á óvart. „Öll verkin komu sterklega til greina þannig að ég átti ekki endilega von á þessu." Páll fjallar í bók sinni um framhaldslíf Jóns Sigurðssonar, hvernig minningarnar um Jón hafa gengið í endurnýjun lífdaga í gegnum tíðina. „Ég var með þetta verk í vinnslu í mörg ár, byrjaði á forvinnunni fyrir sjö til átta árum en einbeitti mér að því síðustu tvö til þrjú árin," segir Páll sem einnig starfar sem lektor við Háskólann á Akureyri. Páll kannaði þekkingu Íslendinga á Jóni Sigurðssyni í tengslum við útkomu bókarinnar sem gefin var út í tilefni 200 ára fæðingarafmælis þjóðhetjunnar. „Tæp 90 prósent þátttakenda sögðu mikilvægt að halda minningu hans á lofti, en þegar spurt var um hvað hann hefði afrekað þá gat tæpur þriðjungur ekki sagt til um það, sem er áhugavert." Páll hefur ekki sagt skilið við rannsóknir á arfleifð Jóns og merkingu. „Ég á mjög mikið efni og ætla að halda áfram að vinna úr því með kennslunni." Fimm bækur voru tilnefndar í hvorum flokki fyrir sig eins og venja er. Í dómnefnd sátu þau Árni Matthíasson sem var formaður, Viðar Eggertsson og Þorgerður Elín Sigurðardóttir. sigridur@frettabladid.is
Menning Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira