Bakkus flytur á Laugaveg 22 19. janúar 2012 15:00 Jón Pálmar Sigurðsson ætlar að flytja með Bakkus yfir á Laugaveg 22 fréttablaðið/arnþór „
Við erum að færa okkur í hentugra húsnæði," segir Jón Pálmar Sigurðsson, sem hefur rekið einn vinsælasta skemmtistað borgarinnar, Bakkus við Tryggvagötu, í um tvö og hálft ár. Á sunnudaginn opnar Bakkus á nýjum stað, á Laugavegi 22, þar sem Barbara hefur verið til húsa. Sá staður færist niður um hæð og sameinast Trúnó, þar sem kaffihús verður á daginn og skemmtistaður á kvöldin. „Það er orðið frekar erfitt að reka svona stóran stað með hækkandi áfengissköttum og sífellt styttri opnunartíma," segir Jón Pálmar um ástæðuna fyrir flutningunum. Hann viðurkennir að tilfinningarnar séu blendar við að breyta um húsnæði. „Mér finnst þetta jákvætt en það er ýmislegt sem maður mun sakna við að vera með svona stóran stað. Við vorum með fullorðinssirkusinn og karnival, sem verður kannski ekki eins auðvelt að halda á nýja staðnum. Við vorum með flottan tónleikastað líka en það var svolítið af illri nauðsyn til að byrja með af því að þetta var svo stórt. Núna fer þetta í að vera frekar hefðbundinn bar en samt með stanslausri dagskrá eins og við höfum alltaf verið með." Aðspurður segist Jón Pálmar ekki hafa áhyggjur af því að fastakúnnarnir hverfi á braut með flutningunum. „Við erum eiginlega nær fastakúnnunum okkar hérna. Við vorum svolítið að draga þá niður í bæ." - fb
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun South Park verður South America Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Kappsmál sett á ís Lífið Fleiri fréttir Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Sjá meira