Heldur hátíð í Færeyjum 26. mars 2012 16:00 Fjölnir Geir Bragason. Mynd/Daníel
Fo Tatt Fest fer fram í fyrsta sinn í Færeyjum dagana 18. til 20. maí. Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður stendur fyrir hátíðinni og hyggst gera hana að árlegum viðburði. „Ég hef heimsótt Færeyjar reglulega frá árinu 1998 og finnst Færeyingar afskaplega indælt og gott fólk með mikinn áhuga á húðflúri. Mig langaði að vekja athygli Færeyinga á því sem er að gerast í húðflúrheiminum og ákvað því að bjóða nokkrum af bestu húðflúrlistamönnum Skandinavíu, sem eru jafnframt meðal þeirra fremstu í heiminum, til landsins. Ég fékk hið stórkostlega Norðurlandahús í Þórshöfn undir batteríið en þar er líka ákaflega fallegur tónleikasalur þannig ég ákvað að beina um leið sviðsljósinu á það flotta tónlistarlíf sem ríkir í Færeyjum," útskýrir Fjölnir Geir og bætir við að tónlistarmennirnir Krummi Björgvinsson í Legend og Barði í Bang Gang hafi báðir sýnt því áhuga að koma fram á hátíðinni. Inntur eftir því hvort einhver munur sé á flúrvali Íslendinga og Færeyinga svarar Fjölnir játandi. „Færeyingar eru mjög trúaðir og það hefur áhrif á flúrvalið. Fólk fær sér gjarnan nöfn systkina eða húðflúr til að minnast látinna ættingja. Maður finnur svolítið fyrir fordómum gangvart húðflúri meðal öfgafyllri málsvara kristinnar trúar en unga fólkið spyrnir við fótum af miklum krafti og það má vel greina miklar breytingar í samfélaginu." Fjölnir ætlar sér að taka upp heimildarmynd á meðan á hátíðinni stendur en hann gerði einmitt heimildarmyndina Flúreyjar um heimsókn sína og Jóns Páls til Færeyja árið 2009. „Mig langar að gera þetta að árlegri vorhátíð. Hugmyndinni hefur verið vel tekið í Færeyjum og mér finnst þess virði að prófa þetta," segir hann að lokum. Áhugasamir geta fylgst með fréttum af hátíðinni á samskiptasíðunni Facebook undir nafninu Fo Tatt Fest. -sm
Mest lesið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Skákborðsréttir nýjasta matartískan Lífið Fleiri fréttir Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Sjá meira