Stjörnurnar syrgja Scott 21. ágúst 2012 22:00 tony scott Leikstjórinn og framleiðandinn framdi sjálfsvíg með því að stökkva fram af brú í Los Angeles. nordicphotos/getty
Hollywood-leikstjórinn Tony Scott svipti sig lífi með því að stökkva fram af brú í Los Angeles. Þekktir leikarar og leikstjórar minntust hans í gær. Sjálfsvíg Tonys Scott hefur komið bæði kvikmyndaáhugamönnum og fólki úr kvikmyndabransanum í opna skjöldu. Hann lést í fyrrakvöld, 68 ára gamall, með því að stökkva fram af brú í Los Angeles. Nokkrir sjónarvottar voru að sjálfsvíginu. Scott var með nokkur verkefni í vinnslu þegar hann lést. Meðal þeirra tveggja stærstu var sjónvarpsmyndin Killing Lincoln fyrir National Geographic Channel og mynd fyrir aðra sjónvarpsstöð, AMC, um demantaviðskipti. Einnig var hann að undirbúa framhaldið af Top Gun, sem var hans vinsælasta mynd. Scott kvæntist þrisvar sinnum og átti tvíburasyni með þriðju eiginkonu sinni Donnu Wilson. „Ekki fleiri myndir frá Tony Scott. Sorgardagur," sagði leikstjórinn Ron Howard um fráfall kollega síns. Annar leikstjóri, Robert Rodriguez, bætti við. „Andskotinn. Það var frábært að kynnast þér vinur. Takk fyrir innblásturinn, ráðin sem ég fékk, hvatninguna og áratugi af frábærri skemmtun." Leikkonan Keira Knightley, sem lék í mynd hans Domino, sagði: „Tony Scott var einn ótrúlegasti og hugmyndaríkasti maður sem ég hef nokkru sinni unnið með. Það voru forréttindi að fá að starfa með honum." Bretinn Stephen Fry bætti svo við: „Virkilega sorglegt að heyra fréttirnar af Tony Scott. Flottur kvikmyndagerðarmaður og afar heillandi og hógvær maður." Auk þess að leikstýra myndum á borð við Top Gun, Beverly Hills Cop II og True Romance var Scott mikilsvirtur framleiðandi. Til að mynda framleiddi hann Prometheus, sem bróðir hans Ridley leikstýrði. Hún var að hluta til tekin upp á Íslandi á síðasta ári. Undanfarin ár leikstýrði Scott nokkrum myndum með Denzel Washington í aðalhlutverki, þar á meðal Man on Fire og Unstoppable. Síðasta myndin sem hann framleiddi var Out of the Furnace með Christian Bale í aðalhlutverki. Hún kemur út á næsta ári.
Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira