Sport

Eygló Ósk endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum

Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi komst ekki í 16-manna úrslit í 200 metra baksundinu á ÓL í London.
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi komst ekki í 16-manna úrslit í 200 metra baksundinu á ÓL í London. Mynd/Valli
Eygló Ósk Gústafsdóttir endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun. Eygló kom í mark á tímanum 2:11,31 mín. en Íslandsmet hennar er 2:10,38 mín sem hún setti á þessu ári. Eygló hefði þurft að synda alveg við Íslandsmet sitt til þess að komast í 16 manna úrslit eða 2:10,60 mín.

Eygló Ósk er aðeins 17 ára gömul og hún keppir fyrir Sundfélagið Ægi og eru þetta fyrstu Ólympíleikarnir á hennar ferli.

Missy Franklin frá Bandaríkjunum náði besta tímanum í undanrásunum en hún kom í mark á tímanum 2:07,54 mín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×